Þjóðbók
Jesús Kr. Jósepsson
sussi@divineentities.com
Ókei. Sá næsti sem segir eitthvað hnyttið um krossfitt við mig í dag þarf að hafa ansi mikið fyrir himnaríkisvistinni.
Hjálmar Jónsson frá Bólu
Andskotans helvítis ekkisens þorri.
Andsvítans bévítans skrattskrambans þorri.
Déskotans rækallsins djöfulsins þorri.
Defilsins grefilsins ólukkans þorri.
 
Sr. Hallgrímur Pétursson
Þorri sestur, þrútnar sinni
þá er best að híma inni.
Rökkurgestur ringlar minni.
Reyni flest á eigin skinni.
 
Steinn Steinarr
Tíminn er eins og vatnið... #kalt #djupt #vitundminsjalfs #mynd #maluðafokkur #50/50 #rennainni #vms #veglausttilthurrdar #togv
 
Jesús Kr. Jósepsson
Vá! Takk fyrir allar afmæliskveðjurnar í gær. Öll lækin, pókin og kommentin. Maður er bara orðlaus. Knús á ykkur öll til baka sætu. Sússi. #jólabarn #YOLO #jóló #messíaserhress #afmælisstrákur #sússaknús #sætusætu #afmæliájólunumsökka #saddur #timbraður #iphonefrápabba #djammíkvöld
 
Steinn Steinarr
Við elskum okkar smjör.
Það er gult og mjúkt.

Og meistarakokkarnir segja:

Að þetta sé.
Besta smjör heimsins!

En þetta er bara tímabundið ástand.
Við höfum áður flutt inn smjör.
En þetta stafar af því.

Að það er.
Neyslubylting í fitunni!

Og við verðum að fá þetta smjör frá vinum okkar Írunum.
Og setja í örfáar vörur.
Og svo kemur bara næsta ár.

Með allri sinni mjólk!
 
Jónas Hallgrímsson
Ljósmóðir, ljósmóðir
leiðindaslytti,
vemmilegt, væmið
vitsmunamorð.
Fari það fjósslóðir
fúlum í pytti.
Klígjulegt, klæmið
og klunnalegt orð.
 
Egill Skallagrímsson
Gekk út ok vó mann. #LOL #hannvarfyrir #oheppinn #ups #kvidstunga #egilsadsjalfsogdu #egills #vegavinnan #hashtag #djofullerekfullr #efniidrapu #fimmtudagsflipper #YOLO
 
Snorri Sturluson
Nú er ég kannski ekki sérfræðingur, en ef ég hefði gert framhaldsmynd um þrumudrenginn Þór, þá hefði hún tvímælalaust borið titilinn: „Mjöllnir snýr aftur“.
 
Jónas frá Hriflu
WHOOP! WHOOP!
 
Steinn Steinarr
Gaf brabra;

ekkert eftir.
 
Dr. Helgi Pjeturss
Ég hefi af því þungar áhyggjur að amerískir kvikmyndadólgar sýna landið okkar æ oftar sem svokallaðan „tökustað“. Sérstaklega í tengslum við kvikmyndir sem ætlað er að höfða til vera af öðrum lífsstjörnum.

Ég tel aðeins tímaspursmál þar til gerkosmískar verur, t.d. geimverur fara að taka fólk, ófrjálsri hendi og án þess samþykkis, af þessum stöðum.
 
Fyrsti málfræðingurinn
Egill sendi:
„Bojobbobbobb skídlíbabbababojojojojo búbabobobobobobojojojoj heyjabobobboskiddlíbobbojojojobboboboj.“

Mylsnudreifari þakkar sendinguna og tekur undir hvert orð.
 
        1, 2, 3, ... 45, 46, 47  
m.baggalutur.is Facebook Tvítill Tónlist.is iTunes YouTube Instagram RSS
Fréttir
Myglar – 24.04.23
 
Enter – 31.05.21
 
Enter – 22.10.20
 
Lesbók
Enter
 
Úr þjóðbók

Skelfing er mér bumbult.

Enda búinn að snúa mér stanslaust í gröfinni alla vikuna.

Í blóðsprengdum nösum mér hangir nú hor
horfinn er veturinn trausti.
Megir þú andskotans volaða vor
verða sem snarast að hausti.

Hafið þið prófað að syngja hartbreikhótel með munninn fullan af mæjónesi? Sjúklega fyndið.

Baggalútur er hýstur af alúð og umhyggju hjá ADVANIA