Mér finnst gott að maula ís,
mikið fínt og gaman.
Mamma er sko í mussu úr flís,
mikið er það gaman.
Er annars að pæla í því hvort þetta „sko“ eigi kannski ekkert heima þarna. Það er náttúrulega danska.
Iss. Ekki þótti mér mikið til þessara trúðslegu íradurga koma. Gátu ekki einu sinni rennt sómasamlega í Síldarvalsinn.
Ef ég hefði ekkert lært
á ævi minni
- ég efalítið ekkert kynni.
Og ef mér hefði enginn kennt
með ást og striti
- ósköp fátt ég vissaf viti.
Ef mér væri ekkert kært
og efst í huga
- til lítils mætti líf mitt duga.
Og ef mér hefði enginn bent
á opna stíga
- ég sæll í skó minn myndi míga.
Fokk! Stýrivextirnir komnir undir 10%. Ég verð þá víst að láta verða af því að fjarlægja af mér öll líkamshár. NTS: Verð að fara að hætta þessum veðmálum við Imbu.