Þjóðbók
Dr. Helgi Pjeturss
nyal.extraterretory.lu
„Til greina kemur að taka upp atriði fyrir nýja Star Trek-mynd á Íslandi í sumar“ segir í einum falsmiðlanna. Vita þessir blessuðu blaðasnápar ekki að sögusvið Star Trek er ekki bara í fjarlægum útgeimi, heldur aukinheldur í framtíðinni? Bjálfar.
Grímur Thomsen
Voðalegt er að heyra þetta með hana Lindsey Lohan, blessuð stúlkan að láta nappa sig með lyftiduft í poka - svona hæfileikarík og blíð stúlka. Æ, ég vona bara að hún lendi ekki í steininum, eins og bölvaður ónytjungurinn hún París...
 
Tómas Guðmundsson
Ósköp er blessaður Vesturbærinn fallegur í sólskininu. Ég fékk mér labbitúr út með Ægisíðunni í dag og brast satt að segja oftar en einu sinni og oftar en tvisvar í grát yfir allri fegurðinni. Fékk svo klígju þegar ég sá Seltjarnarnesið og flýtti mér heim...
 
Sr. Hallgrímur Pétursson
Voðalega fer það í taugarnar á mér hvað það er glápt á mann í laugunum. Fólk kann sig ekki lengur. Það mætti halda að þetta lið hefði aldrei séð holdsveikt sálmaskáld á sundskýlu áður...
 
Jónas frá Hriflu
Nei andskotinn. Fjórar konur í ríkisstjórn! Hvað næst - karlkyns hjúkkur?
 
Jónas Hallgrímsson
Ég orti nýtt kvæði í morgun. Ég held að ég sé að ná að fullkomna stílinn.

Mér finnst gott að maula ís,

mikið fínt og gaman.

Mamma er sko í mussu úr flís,

mikið er það gaman.


Er annars að pæla í því hvort þetta „sko“ eigi kannski ekkert heima þarna. Það er náttúrulega danska.

 
Jónas Hallgrímsson
Note to self: Ekki skrifa ódauðlega sonnettu á kjörseðlinn. Það ógildir atkvæðið...
 
Halldór Kiljan Laxness
Fari það í fúlan pytt. Er nú verið að næla stórriddarakrossi á einhvurja vesturíslenska ballerínu! Isspiss. Allir geta nú feingið þetta glingur. Mín fer rakleitt á íbei eftir helgi...
 
Einar Ben
Nú er bara að hysja upp um sig buxurnar, mynda stjórn, ýta rauðsprettunum öfundsjúku endanlega út í sitt vinstra horn - og byrja að stífla fyrir einhverja alvöru...
 
Jónas frá Hriflu
Þetta voru nú ljótu úrslitin :(. Að mínir menn geti ekki einu sinni slefað formanninum inn á þing er auðvitað gersamlega glatað. Það hefði betur farið á því að hafa kind í 1. sætinu, eins og ég stakk upp á...
 
Tómas Guðmundsson
Sko til, er ekki blessuð sólin farin að skína á Reykjavíkina mína. Allt hún elskar ljúfust stjarna. Gleði barna. Angan Vesturbæjar. En mikið lifandis, skelfing vona ég að helvítis Garðabæinn rigni niður í sumar...
 
Jón Sigurðsson
Hvað á maður að kjósa af þessum liðleskjum sem í framboði eru til hins háa Alþingis? Ég hef verulega illan bifur á þessu stóði öllu. Ætli það endi ekki með því að maður skili auðu, eins og venjulega...
 
Jóhannes S. Kjarval
Mikið hlakka ég nú til að fara upp á Þingvelli og liggja þar með trönurnar fram á haust. Mála kannski soldið hraun. Bara að muna að taka með frjóofnæmispillurnar svo þetta endi ekki eins og í fyrra...
 
        1, 2, 3 ... 42, 43, 44, 45, 46  
Fréttir
Númi Fannsker – 16/5/13
 
Lesbók
Úr þjóðbók

Svei mér þá. Nú er eitthvert auglýsingaviðrinið búið að dubba upp einhvern þunnhærðan smjörspikaðan skeggapa í minni mynd á heilli opnu í Fréttablaðinu. Til að auglýsa einhverjar ekkisens kaffivéla- og stofublómatryggingar! Þessu uppstrílaða greppitrýni fylgir svo einkar ósmekklegr tilvísun í það þegar ég hrundi blekhellaður niður tröppurnar úti í Köben forðum.

Hvað næst? Á að birta heilsíðumynd af því þegar við Nonni Sig fengum sífilisið?

Þú syndum hlaðna drottning lífsins lasta
sem laðar til þín gírug fórnarlömb.
Þér dreyrsultaðri í glenntan kjaft minn kasta
og kýli bleiktum rjóma þanda vömb.

Hvunær setur maður skóinn útí glugga og hvunær setur maður skóinn ekki út í glugga.

Baggalútur er hýstur af alúð og umhyggju hjá ADVANIA