Þjóðbók
Dr. Helgi Pjeturss
nyal.extraterretory.lu
„Til greina kemur að taka upp atriði fyrir nýja Star Trek-mynd á Íslandi í sumar“ segir í einum falsmiðlanna. Vita þessir blessuðu blaðasnápar ekki að sögusvið Star Trek er ekki bara í fjarlægum útgeimi, heldur aukinheldur í framtíðinni? Bjálfar.
Jónas frá Hriflu
WHOOP! WHOOP!
 
Steinn Steinarr
Gaf brabra;

ekkert eftir.
 
Dr. Helgi Pjeturss
Ég hefi af því þungar áhyggjur að amerískir kvikmyndadólgar sýna landið okkar æ oftar sem svokallaðan „tökustað“. Sérstaklega í tengslum við kvikmyndir sem ætlað er að höfða til vera af öðrum lífsstjörnum.

Ég tel aðeins tímaspursmál þar til gerkosmískar verur, t.d. geimverur fara að taka fólk, ófrjálsri hendi og án þess samþykkis, af þessum stöðum.
 
Fyrsti málfræðingurinn
Egill sendi:
„Bojobbobbobb skídlíbabbababojojojojo búbabobobobobobojojojoj heyjabobobboskiddlíbobbojojojobboboboj.“

Mylsnudreifari þakkar sendinguna og tekur undir hvert orð.
 
Hjálmar Jónsson frá Bólu
Allt mitt verk er einskis nýtt
enginn mun þess njóta
sé því trautt á torrent ýtt
til þess dán að lóda.

Gleymist fljótt mitt fagra starf
fáir um það tala
ef allt mitt pauf og allt mitt garf
engir niðurhala.

Endi ég mitt ævipot
upp sér fáir kippa
ef bækur mínar blöð og krot
bísar ekki rippa.

Ef þú þjóð, vilt minnast mín
og milda dauðahretið.
Troddu mér í skráarskrín
og skelltu mér á netið.
 
Davíð Stefánsson
Á feisbúkkið mæðurnar mæta
við misvitrum ummælum bæta.
Deila og daðra
dissa hver aðra
og kommenta loks: sæta-sæta.
 
Sigurður Breiðfjörð
Ég hafði ekki grænan grun
en gleðifrétt í dag ég les.
Nonni segir: Hér varð „hrun“
— sem honum þótti ekkert spes.
 
Jesús Kr. Jósepsson
Hananú! Sandalinn galtómur í glugganum í morgun. Pabbi segir að ég eigi að vera löngu vaxinn upp úr því að fá í skóinn!

Hvað er hann eiginlega að gefa í skyn?
 
Gísli á Uppsölum
Tíhíhíhí. Kombar varildi nofloss aga Arnaldur!

Ehehe ... abarno flage ebr úmúsla metsala!!!

Felomo tarasa jól tromli spúrr. Tíhíhí.
 
Einar Ben
Hippsterinn nefbleikur hímir við vegg.
Hljómsveitin fannst honum óvenju slöpp.
Skimar og gónir sem úlfur á egg
að einhverju kvenslags að taka á löpp.
Að þetta grey skyldi álpast á legg,
agndofa spyr ég mig, rök eru knöpp.
Allt sem hann hefur er húfa og skegg
– við Hörpu loks króknar með fingur við öpp.
 
Hjálmar Jónsson frá Bólu
Sandý með látum nú lendir
og limlestir sköllótta örninn.
En CNN, seg mér hvað hendir
– Jacqueline og vesalings börnin?
 
Grímur Thomsen
Berst úr dalnum fruss og fliss
– fari það í úldið piss.
Landsliðsdruslan, vertu viss
var að tapa fyrir Sviss.
 
     1, 2, 3 ... 44, 45, 46  
Fréttir
Númi Fannsker – 16/5/13
 
Lesbók
Úr þjóðbók

Það er mér mikill heiður að tilkynna vaxtalaust 8 billjón stjörnudúkarta lán til lýðveldisins frá fjarlægri, vinveittri lífsstjörnu sem ég hef átt í nokkrum samskiptum við undanfarið.

Slæmu fréttirnar eru að millifærslan þarf að berast 4.000 ljósára leið.

Ég get nú ekki annað en verið himinlifandi með nýjustu myndina um Indiana Jones, enda myndin bersýnilega undir sterkum áhrifum frá kenningum mínum um nýal og hið mikla samband.

Höfuðskeljarnar sem sagan hverfist um hefðu þó að ósekju mátt vera úr kóbalti, því eins og allir sæmilega gefnir menn vita er vonlaust að ná gerkosmísku sambandi um kristal.

Voðalega fer það í taugarnar á mér hvað það er glápt á mann í laugunum. Fólk kann sig ekki lengur. Það mætti halda að þetta lið hefði aldrei séð holdsveikt sálmaskáld á sundskýlu áður...

Baggalútur er hýstur af alúð og umhyggju hjá ADVANIA