Mér finnst gott að maula ís,
mikið fínt og gaman.
Mamma er sko í mussu úr flís,
mikið er það gaman.
Er annars að pæla í því hvort þetta „sko“ eigi kannski ekkert heima þarna. Það er náttúrulega danska.
Gleymdi að kaupa gjöf handa Guddu. Of upptekinn í helvítis sálmastússinu.
Fokkiddífokkingsfokk. Nú rífur hún pottþétt af mér hitt eyrað.
Ég mæli hiklaust með pönnusteiktum slaungulúngum frá Sörensen kaupmanni, með miklu sméri. Hreinasta lostæti.
Á skeljum heim ég skríð á ný
skjálfandi á beinum.
Við dögun hef ég dúxað í
drykkjutengdum greinum.