Þjóðbók
Gísli á Uppsölum
gilli.funnylittlehermits.ru
Ommnommnommnomm. Ommínommnommnomm. Njommsnjomms. Gommonomminommnomm. Njammsnjamms? Ohohoho hohoho! HAH! Njommimjomm. Ommnommnomm. Tíhíhí.
Jónas frá Hriflu
WHOOP! WHOOP!
 
Steinn Steinarr
Gaf brabra;

ekkert eftir.
 
Dr. Helgi Pjeturss
Ég hefi af því þungar áhyggjur að amerískir kvikmyndadólgar sýna landið okkar æ oftar sem svokallaðan „tökustað“. Sérstaklega í tengslum við kvikmyndir sem ætlað er að höfða til vera af öðrum lífsstjörnum.

Ég tel aðeins tímaspursmál þar til gerkosmískar verur, t.d. geimverur fara að taka fólk, ófrjálsri hendi og án þess samþykkis, af þessum stöðum.
 
Fyrsti málfræðingurinn
Egill sendi:
„Bojobbobbobb skídlíbabbababojojojojo búbabobobobobobojojojoj heyjabobobboskiddlíbobbojojojobboboboj.“

Mylsnudreifari þakkar sendinguna og tekur undir hvert orð.
 
Hjálmar Jónsson frá Bólu
Allt mitt verk er einskis nýtt
enginn mun þess njóta
sé því trautt á torrent ýtt
til þess dán að lóda.

Gleymist fljótt mitt fagra starf
fáir um það tala
ef allt mitt pauf og allt mitt garf
engir niðurhala.

Endi ég mitt ævipot
upp sér fáir kippa
ef bækur mínar blöð og krot
bísar ekki rippa.

Ef þú þjóð, vilt minnast mín
og milda dauðahretið.
Troddu mér í skráarskrín
og skelltu mér á netið.
 
Davíð Stefánsson
Á feisbúkkið mæðurnar mæta
við misvitrum ummælum bæta.
Deila og daðra
dissa hver aðra
og kommenta loks: sæta-sæta.
 
Sigurður Breiðfjörð
Ég hafði ekki grænan grun
en gleðifrétt í dag ég les.
Nonni segir: Hér varð „hrun“
— sem honum þótti ekkert spes.
 
Jesús Kr. Jósepsson
Hananú! Sandalinn galtómur í glugganum í morgun. Pabbi segir að ég eigi að vera löngu vaxinn upp úr því að fá í skóinn!

Hvað er hann eiginlega að gefa í skyn?
 
Gísli á Uppsölum
Tíhíhíhí. Kombar varildi nofloss aga Arnaldur!

Ehehe ... abarno flage ebr úmúsla metsala!!!

Felomo tarasa jól tromli spúrr. Tíhíhí.
 
Einar Ben
Hippsterinn nefbleikur hímir við vegg.
Hljómsveitin fannst honum óvenju slöpp.
Skimar og gónir sem úlfur á egg
að einhverju kvenslags að taka á löpp.
Að þetta grey skyldi álpast á legg,
agndofa spyr ég mig, rök eru knöpp.
Allt sem hann hefur er húfa og skegg
– við Hörpu loks króknar með fingur við öpp.
 
Hjálmar Jónsson frá Bólu
Sandý með látum nú lendir
og limlestir sköllótta örninn.
En CNN, seg mér hvað hendir
– Jacqueline og vesalings börnin?
 
Grímur Thomsen
Berst úr dalnum fruss og fliss
– fari það í úldið piss.
Landsliðsdruslan, vertu viss
var að tapa fyrir Sviss.
 
     1, 2, 3 ... 44, 45, 46  
Fréttir
Númi Fannsker – 16/5/13
 
Lesbók
Úr þjóðbók

Jáhérnabarastahér. „Björt framtíð?“ Er þetta virkilega það besta sem flokkaflakkaranum og bestuskinnunum datt í hug? Hvað með „Blóm og kanínur“, „Ástarpungarnir“ eða „Englatásur“? – Hvílík kvoða og vemmivelgja.

Helvíti rennur framsóknarblóðið hægt í æðum erfðaprinsins.

Ég horfði á afar fróðlegan þátt í norska ríkissjónvarpinu í fyrrakvöld um samanburðarrannsóknir á hripseiglu nælonregnhlífa. Stórkostleg norsk dagskrárgerð á heimsmælikvarða. AFHVERJU ERU EKKI SVONA ÞÆTTIR Á DAGSKRÁ RÚV? Hvurslags mannhatur er það eiginlega sem viðgengst hjá hinum háu herrum í Efstaleitinu? Á sama tíma var sýnd ömurleg áróðursmynd um brosmildi japanskra höfrunga sem skildi ekkert eftir sig nema hungurtilfinningu. Ég fór beinustu leið í 10-11 og keypti mér hrefnukjöt sem ég át hrátt og skolaði niður með G-mjólk.

Egill sendi:
„Bojobbobbobb skídlíbabbababojojojojo búbabobobobobobojojojoj heyjabobobboskiddlíbobbojojojobboboboj.“

Mylsnudreifari þakkar sendinguna og tekur undir hvert orð.

Baggalútur er hýstur af alúð og umhyggju hjá ADVANIA