Mér finnst gott að maula ís,
mikið fínt og gaman.
Mamma er sko í mussu úr flís,
mikið er það gaman.
Er annars að pæla í því hvort þetta „sko“ eigi kannski ekkert heima þarna. Það er náttúrulega danska.
Í búningsklefans baðherbergi
býður mér við flestu.
Þar gólfið hári, húð og mergi
hulið er að mestu.
Note to self: Ekki drekka rakspíra áður en maður fer í rauðvínspartý í menntamálaráðuneytinu.
Gat nú verið. Nú á aldeilis að fara að spara. Og hvar skyldi fyrst vera skorið niður? Jú, mikið rétt. Það er enn og aftur búið að fresta byggingu stjörnusambandsstöðvar á Eyrarfjalli. Svei mér þá. Þetta pakk á hreinlega ekki skilið að uppgötva líf á öðrum lífsstjörnum.