Þjóðbók
Einar Ben
einarben.wordpress.com
Til hinstu hvílu Gaddafi er genginn
gæðablóð nú þekur elsku drenginn.
Traustur vinur horfinn hugskotssjónum
– minn hugur er hjá vígaamasónum.
Tómas Guðmundsson
Mikið er nú rokið í henni Reykjavík alltaf velkomið og indælt.

Annað en skítablásturinn í Kópavoginum, fimbulgarrinn í Mosó eða andfúlt fjúkið úti á Nesi.
 
Fyrsti málfræðingurinn
Hinn annars ágæti fréttaþulur, Broddi Broddason (ef það er þá hans rétta nafn), sagði í hádegisfréttum Ríkisútvarpsins-hljóðvarps (eða RÚV, eins og stjórnleysingjarnir í Efstaleiti vilja af óskiljanlegum ástæðum kalla þessa stofnun sem við, skattborgarar þessa lands, eigum) að tiltekin rækjuvinnsla væri „farin á hausinn.” Heyr á endemi! Eru nú sjávarútvegsfyrirtæki úti á landi með hausa? Eða er tiltekin rækjuvinnsla ef til vill farin á haus einhvers annars? Bauhaus kannski? (aths. mylsnudreifara: þessa skrítlu sendi Mylsnufan - hafi hann þökk fyrir)

Vitaskuld hefði áðurnefndur Broddi átt að segja þarna að tiltekin rækjuvinnsla væri „farin á rassgatið,” enda eru þau bæði mörg og víðfeðm á sjávarútvegsfyrirtækjum þessa lands. Og jafnan troðfull af peningum annarra.

Einnig legg ég til að téður Broddi hækki róm sinn um eins og tvær áttundir. Þessi strigabassalestur verður til þess að mylsnudreifari þarf að skipta um rafhlöður í heyrnartækjum sínum daglega. Heyr á endemi!

Fyrirvari: Efni þessara skrifa endurspeglar á engan hátt staðreyndir. Það endurspeglar ekki einu sinni skoðanir mylsnudreifara. Í raun endurspeglar það ekki nokkurn skapaðan hlut.
 
Dr. Helgi Pjeturss
„Til greina kemur að taka upp atriði fyrir nýja Star Trek-mynd á Íslandi í sumar“ segir í einum falsmiðlanna. Vita þessir blessuðu blaðasnápar ekki að sögusvið Star Trek er ekki bara í fjarlægum útgeimi, heldur aukinheldur í framtíðinni? Bjálfar.
 
Sigurður Nordal
Gleymdi að seifa handritið að þrekvirkinu „Íslensk menning II.” Aftur! Jæja, þá er bara að byrja upp á nýtt...
 
Jónas Hallgrímsson
Fari það í hálfhoppandi heitasta helvíti. Á nú að klína manni blásaklausum á einhverja peningalufsu? Eina ferðina enn. Hvað með Hófí? Hvað með Megas? Hvað með Baldur fokking Tryggvason?!
 
Gísli á Uppsölum
Ommnommnommnomm. Ommínommnommnomm. Njommsnjomms. Gommonomminommnomm. Njammsnjamms? Ohohoho hohoho! HAH! Njommimjomm. Ommnommnomm. Tíhíhí.
 
Jónas Hallgrímsson
Enginn kostur er mér sístur
– allar konur gisti.
Enda kjellinn yfirlýstur
öfgafemínisti.
 
Sr. Hallgrímur Pétursson
Ef umferð um líf þitt er erfið og þung
og illfært að koma sér héðan.
Leggðu þá sköfu að skeggjuðum pung
uns sköllóttur ertu að neðan.

Opnast þá heimsins hýrasta braut
– hólpinn þú gengur í burtu.
En ólukkans lággresið, loðið í graut
liggur í hversdagsins sturtu.
 
Davíð Stefánsson
Snert fésbók mína, femínistadís
svo fái ég mér aldrei strákaís.
Við stöðu mína kát þú kommentar
um kynjahalla mjókuriðnaðar.

Ef fávitar sem fitla netið við
hin femínísku gildi setja á bið.
Þú karlrembur þá kallar, nógu hátt
þá klæða þeir sig aldrei meir í blátt.

Ég heyri á fésbók villtan veggjaþyt.
frá valkyrjum sem eru alveg bit.
Snert fésbók mína, femíníska dís
svo fái ég mér kynjafnaðan ís.
 
Hjálmar Jónsson frá Bólu
Handbolti ég hata þitt
hreðjatak á þjóðarpungnum.
Farðu beint í fúlan pytt
að fokkings þjóðsöngvunum sungnum.
 
Jesús Kr. Jósepsson
Stundum kemur það sér bara skrambi vel að geta fótað sig á vatni.
 
Jónas frá Hriflu
Jáhérnabarastahér. „Björt framtíð?“ Er þetta virkilega það besta sem flokkaflakkaranum og bestuskinnunum datt í hug? Hvað með „Blóm og kanínur“, „Ástarpungarnir“ eða „Englatásur“? – Hvílík kvoða og vemmivelgja.

Helvíti rennur framsóknarblóðið hægt í æðum erfðaprinsins.
 
        1, 2, 3, ... 44, 45, 46  
Fréttir
Enter – 3/6/13
 
Númi Fannsker – 28/5/13
 
Lesbók
Enter
 
Úr þjóðbók

Heldur þykir mér ótrúverðugt þegar stjórnmálamenn tala fjálglega um alheimskreppu. Þegar vetrarbrautin okkar skilaði 515 grilljón sjörnudúkarta methagnaði á síðasta ársfjórðungi (m.v. við meðalár innan brautarinnar).

Nær lagi væri að tala um sólkerfiskreppu (jafnvel þó rúm 70 ár séu í að Plútverjar skili næstu ársskýrslu).

Þá er kjeps skriðinn yfir hundrað ára múrinn. Ekki seinna vænna að byrja að blogga.

Mig langar að byrja á því að ítreka það (til að fyrirbyggja allan misskilning (og rangtúlkanir (sumra))) að tíminn er eins og vatnið.

Þú náttmyrka, ilmfagra, baunmulda blanda
er brennir burt höfgina, svefndrukknum færir mér þrótt.
Fyrst lifna þá ylvolgum kaleiknum held milli handa.
Þú heldur mér bragðblakkri greip þinni í, fram á nótt.

Baggalútur er hýstur af alúð og umhyggju hjá ADVANIA