Mér finnst gott að maula ís,
mikið fínt og gaman.
Mamma er sko í mussu úr flís,
mikið er það gaman.
Er annars að pæla í því hvort þetta „sko“ eigi kannski ekkert heima þarna. Það er náttúrulega danska.
Mér þykir
það sorglegast
við Alþingi
að Siggi Sigurjóns
sé orðinn of gamall
til að leika
Birgi Ármannsson
í Skaupinu
Ikea í Ameríku!
Aldrei venst því ríkra slekt.
Flíka skaltu fráleitt slíku
– forljótt, sænskt og tíkarlegt.
Get ég fengið eitt á hreint?
Mega krakkarnir mínir syngja „Bíddu pabbi“ og „Pabbi þarf að vinna“ í skólanum? Og hvað með „Afi minn fór á honum rauð?“
Þetta er pínu ruglingslegt.