Ţjóđbók
Sr. Hallgrímur Pétursson
uppupp.blogmasters.ru
Vér erum geymd í geimi
geimverur, ađ sönnu.
Ein í eigin heimi
međ allt á vorri könnu.
Sr. Hallgrímur Pétursson
Ef umferđ um líf ţitt er erfiđ og ţung
og illfćrt ađ koma sér héđan.
Leggđu ţá sköfu ađ skeggjuđum pung
uns sköllóttur ertu ađ neđan.

Opnast ţá heimsins hýrasta braut
– hólpinn ţú gengur í burtu.
En ólukkans lággresiđ, lođiđ í graut
liggur í hversdagsins sturtu.
 
Sr. Hallgrímur Pétursson
Mér finnt ég vera
jólakúla sem snjóar
ţegar hún er hrist.
 
Sr. Hallgrímur Pétursson
Laus viđ kvabb og kjass ég er,
kertaljós og hórerí.
Ţađ vćri ráđ ađ veita hér
viđvarandi kvennafrí.
 
Sr. Hallgrímur Pétursson
Sko til. ţetta góđa kvćđi er ţá fundiđ.

Ertu dauđur, elsku vin?
Ć, hvađ ţađ var gott.
Lokast ţá ţitt ljóta gin
og lćvíst hverfur glott.
Oní holu hnígur brátt
hrć ţitt, önd og sál.
Ég mun lyfta horni hátt
og hrópa glađur: Skál!
 
Sr. Hallgrímur Pétursson
Ef ég hefđi ekkert lćrt
á ćvi minni
- ég efalítiđ ekkert kynni.
Og ef mér hefđi enginn kennt
međ ást og striti
- ósköp fátt ég vissaf viti.
Ef mér vćri ekkert kćrt
og efst í huga
- til lítils mćtti líf mitt duga.
Og ef mér hefđi enginn bent
á opna stíga
- ég sćll í skó minn myndi míga.
 
Sr. Hallgrímur Pétursson
Nímenningum níđst er á
af nýfasískum fautum.
En sjömenningar sigla frá
sínum skuldunautum.
 
Sr. Hallgrímur Pétursson
Ekki vill međ Jóku Jenis
(Jesú vegna) snćđa.
Ekki vill hann einn međ penis
efnahagsmál rćđa.
 
Sr. Hallgrímur Pétursson
Pólitískra pensjónţega
pína er hin mesta
ađ ţjóđin ćtli endilega
ađ eltast viđ ţađ besta.
 
Sr. Hallgrímur Pétursson
Ef dađrar viđ ţig dáti
og duflar upp úr skónum
ţú endar ein á báti
međ ógleđi, á sjónum.
 
Sr. Hallgrímur Pétursson
Úff. Ég verđ ađ hćtta ađ glápa á ţennan handbolta. Reif nćstum af mér hendurnar í lokafagninu. Landsleikjaáhorf eru ekki fyrir holdsveika.
 
Sr. Hallgrímur Pétursson
Áfengiđ er ćrlegs manns
eini sanni vinur.
Sáluhjálp og huggun hans
hvađ svo sem á dynur.
Í ţví liggur fólgin fró
friđarathvarf, hugarró
og svo mćtti lengi, lengi telja.
Leiđist mér ţví upp ađ ţurfađ selja.
 
Sr. Hallgrímur Pétursson
Er Patrekur hinn svćsni svifinn burtu?
Sakna munu flestar ţjóđir hans.
Međ honum fljóđin fjölmenntu í sturtu
forđum – ţá hann steig sinn sóđadans.
 
     1, 2, 3, 4  
Fréttir
Númi Fannsker – 16/5/13
 
Lesbók
Úr ţjóđbók

Las ţađ einhvers stađar ađ ţađ ţyrfti ađ tćma ca. 400 stykki af litlu súkkulađiflöskunum í nóakonfektkössunum til ađ finna almennilega á sér.

Ţađ stemmir.

Hvílík heimska er ţađ ađ eltast viđ úrelt farartćki sem ganga fyrir bensíni, olíu og rafurmagni. Slík ólíkindatól áttu sitt blómaskeiđ fyrir meir en öld síđan. Hve nćr mun fólk átta sig á ţví ađ farskjóti framtíđar er hinn dreymandi hugur, sem rétt beislađur getur flutt okkur um óravíddir alheimsins, án fyrirhafnar og kostnađar.

Ég hlýt ađ minna stjórnvöld einn ganginn enn á ađ einu réttu ađgerđir nú á erfiđum tímum er ađ reisa um allt land opinberar stjörnusambandsstöđvar, opnar allri alţýđu manna – og stórauka ađ sama skapi frćđslu um nýal og ţćr lífsstjörnur sem standa okkur nćst í tíma og rúmi.

Hvađa lýđskrymjandi frođusnakki datt í hug ađ kalla ţessa dragúldnu dökkdimmu dagleysu sunnudag? Hvílík og önnur eins andskotahelvísk óskhyggja. Nćr vćri ađ nefna ţessa viđvarandi ljósleysu blökkudag. Ţessum undirliggjandi ömurđarlygum ţjóđfélagsins verđur ađ linna.

Baggalútur er hýstur af alúđ og umhyggju hjá ADVANIA