Þjóðbók
Sigurður Breiðfjörð
siggibreik.rimnablogg.is
Bónus-Jói bakkar frá;
ber fyrir sig nísku.
Fornfræg kaupmannskempan þá
komin er úr tísku.
Sigurður Breiðfjörð
Ég hafði ekki grænan grun
en gleðifrétt í dag ég les.
Nonni segir: Hér varð „hrun“
— sem honum þótti ekkert spes.
 
Sigurður Breiðfjörð
Mjög mér leiðast ljóðahöld
um langa, stranga gróðaöld.
Heldur kýs ég fljóðafjöld
og flennisturlað sóðakvöld.
 
Sigurður Breiðfjörð
Erikur!, Erikur!
útvarpið galar.
Erikur!, Erikur!
eru nú falar.
Erikur!, Erikur!
á ég að hlaupa?
Er ykkur, er ykkur
einhver að kaupa?
 
Sigurður Breiðfjörð
Kætast stórum kynja beggja
kvennaskólameyjar.
Bólgin augu aftur leggja
emmerringapeyjar.
 
Sigurður Breiðfjörð
Að nefna húsfrú hlussu og brussu
er harðbannað.
En kalli ég hana kellingartussu
kemst ég upp með það.
 
Sigurður Breiðfjörð
Seljabrytableikjulið
boðið mun mér vart í.
En hangið get ég heima við
og halt míns eigins partí.
 
Sigurður Breiðfjörð
Þórunn, hún þarf sig að passa.
Þurfi hún hljóðnemað kjassa
mætti hún minna
mala við kynna
um annarra ættingja rassa.
 
Sigurður Breiðfjörð
Ikea í Ameríku!
Aldrei venst því ríkra slekt.
Flíka skaltu fráleitt slíku
– forljótt, sænskt og tíkarlegt.
 
Sigurður Breiðfjörð
Smyr þú maga mýktum baunum,
munnvatn saltar, léttir raunum,
vinda leysir, leggst að hlaunum,
loftin fyllir úldnum daunum.
 
Sigurður Breiðfjörð
Fátt er nú um fína þætti
flötum á skjám.
Sáttur væri, ef ég ætti
örlítið klám.
 
Sigurður Breiðfjörð
Ó þú blakki blíði makki
bylt úr hnakki, illa fallinn.
Fyrir hakk þitt, þúsund þakkir
þín mun saknað, heillakallinn.
 
Sigurður Breiðfjörð
Rogginn mogga mætir á
maðurinn – sem þóttist látinn.
Bloggar foggill þjóðin þá:
það er komið Dabb í bátinn.
 
     1, 2, 3  
Fréttir
Númi Fannsker – 16/5/13
 
Lesbók
Úr þjóðbók

Ósköp er blessaður Vesturbærinn fallegur í sólskininu. Ég fékk mér labbitúr út með Ægisíðunni í dag og brast satt að segja oftar en einu sinni og oftar en tvisvar í grát yfir allri fegurðinni. Fékk svo klígju þegar ég sá Seltjarnarnesið og flýtti mér heim...

Í nótt komst ég í sérdeilis gott samband við huggulega konu á annarri lífsstjörnu. Svo gott raunar að við ætlum að vera í sambandi aftur, ef ekki strax í kvöld, þá í einhverju næstu framhaldslífa.
En sambandið var sumsé frámunalega gott. Ég hlýt að þakka það nýju kóbalthúðuðu spædermannáttfötunum mínum.

Þá er ég loksins búinn af fullþróa taggið mitt. Það er sumsé orðið 'Kjarri' þar sem káið myndar rjúpu og hinir stafirnir einskyns hraunbreiðu. Sjúklega töff.

Það tók ekki nema 3.412 tilraunir á jafn marga veggi, bekki, tengikassa, ljósastaura og ketti að ná því réttu.

Baggalútur er hýstur af alúð og umhyggju hjá ADVANIA