Hvernig er það, eru menn almennt að halda upp á 2010 ára afmæli? Og erum við þá að tala um brauðtertufrenzý, pulsufest, eða kokkteilsplæs?
Bónus-Jói bakkar frá;
ber fyrir sig nísku.
Fornfræg kaupmannskempan þá
komin er úr tísku.
Ég hef í hyggju að rita annan sálmaflokk, í svipuðum stíl og passíusálmana mína, um ekki síðri hetju en hann Jesús minn. Nefnilega hinn eina sanna Messías 20. aldarinnar, sjálfan Greystoke lávarð – eða Tarzan.
Ég hlakka óskaplega til, enda ólíkt skemmtilegra að yrkja um apa en Gyðinga.