Mér finnst gott að maula ís,
mikið fínt og gaman.
Mamma er sko í mussu úr flís,
mikið er það gaman.
Er annars að pæla í því hvort þetta „sko“ eigi kannski ekkert heima þarna. Það er náttúrulega danska.
Voðalegt er að heyra þetta með hana Lindsey Lohan, blessuð stúlkan að láta nappa sig með lyftiduft í poka - svona hæfileikarík og blíð stúlka. Æ, ég vona bara að hún lendi ekki í steininum, eins og bölvaður ónytjungurinn hún París...
Haldiði ekki að drulluskítapésa-bankablóðsugan í nýja Búnaðarbankanum ætli að lækka launin úr frámunasvívirðisjúklega háum í stjarnfræðisvínsgerræðislega svimandi há, til samræmis við niðursettu spensuguna í nýja Útvegsbankanum. Sætt af honum.
Í Hörpu listin dýra dvelur
þar drýpur gull af hverjum koppi.
Hámenningin hlustir kvelur
og himneskum nær nýjum toppi.
Það vanda aðall tæpast telur
þó tónlistirnar æðri floppi.
Ef fáa miða Sinfó selur
– safnast fé af aumu poppi.