Fari það í hálfhoppandi heitasta helvíti. Á nú að klína manni blásaklausum á einhverja peningalufsu? Eina ferðina enn. Hvað með Hófí? Hvað með Megas? Hvað með Baldur fokking Tryggvason?!
Gott og vel. Ég meika biblíumyndirnar, bænakvakið, orgelspilið og sálmagaulið – jafnvel jólafrenzýið.
En væmnu gaurarnir í kjólunum geta farið alveg skelfilega í taugarnar á mér.
Nef ég þerra; vorið vekur
vefi þrútinna nasa.
Ef ég hnerra horið lekur
– hef því klút minn í vasa.