Mér finnst gott að maula ís,
mikið fínt og gaman.
Mamma er sko í mussu úr flís,
mikið er það gaman.
Er annars að pæla í því hvort þetta „sko“ eigi kannski ekkert heima þarna. Það er náttúrulega danska.
Skelfíng verð jég altaf húngraður sona að kveldlæi. Spurníng um að smurja samlukt með hángiketi og gjæsabríngu og fá sjér nístíngskalt pefsí með.
Ef daðrar við þig dáti
og duflar upp úr skónum
þú endar ein á báti
með ógleði, á sjónum.
Jæja. Ég var í alla nótt að vinna í nýja 30 erinda kvæðinu mínu um fossana. Það er farið að taka á sig mynd og er bara býsna gott kvæði, þó ég segi sjálfur frá.
Það lítur þá orðið svona út (en ég ítreka að þetta er enn í vinnslu):