Mér finnst gott að maula ís,
mikið fínt og gaman.
Mamma er sko í mussu úr flís,
mikið er það gaman.
Er annars að pæla í því hvort þetta „sko“ eigi kannski ekkert heima þarna. Það er náttúrulega danska.
Mikið lifandis ósköp er Reykjavíkin mín alltaf falleg. Vesturbærinn ilmar. Perluna ber við himinn. Fuglar syngja. Það er vor í lofti.
En mikið djöfulli sökkar Kópavogurinn...
Voðalegt endemis vesen alltaf á þessari krónu. Ég sagði alltaf að það væru mistök að hætta með blessuð kúgildin.
Það held ég væri ólíkt fjörugra í kauphöllinni í dag, væru þau enn við lýði.
Snemma burt úr bænum skreið
búinn eftir þeysireið
kvaddi kráarsælu
loppinn hálstau leysti frá
listaskáldið kreisti þá
upp úr hálsi ælu