Þjóðbók
Jón Leifs
gargondin.blog.fih.is
Þvílíkur plebba- og molbúaháttur alltaf hreint. Nú á skyndilega að fara að spara og skera niður hljófærakostnað við frumflutning á nýju sinfóníunni minni, Hæni.

Hvernig dirfast þessir aumu peningamenn að stinga upp á slíkum helgispjöllum? Þegar ég segi að eitthvað skuli leikið á 20 tundurdufl, uppstoppaðan pandabjörn og hljómandi flugmóðurskip – þá er það bara þannig!
Jón Leifs
Jæja. Þá er búið að opna ljúka upp Hörpunni. Voða fínt allt saman. Smá spæling samt að útsetning mín á Litlu flugunni fyrir snjóplóg og safapressukvintett var ekki flutt. En það bíður betri tíma.
 
Jón Leifs
Fokk, skráningu í músíktilraunir lýkur á morgun. Ég verð að gera upp við mig hvort ég keppi með 200 jómfrúa öskurkórnum (sem Icescream) eða sóló á hakkavél og kind (sem DJ Hakkalainen).
 
Jón Leifs
Æi fokk. Gleymdi að senda lag í júróvisjón. Ég sem var búinn að semja þetta fína dúvopplag fyrir tvo frystitogara, blökkualbínóadverggelding og hvítlaukspressu.
 
Jón Leifs
Almáttugur minn einasti. Tónleikar eftir korter og ég finn hvergi sólóostaskerann.
 
Jón Leifs
Óska hér með eftir að vera boðið í gott júróvisjónpartí í kvöld. Lofa að setja ekkert út á lagasmíðarnar og að fara ekki að semja neitt á heimilistækin eftir miðnætti.
 
Jón Leifs
Enn er maður hundsaður á þessum asnalegu tónlistarverðlaunum. Nýja sinfónían mín fyrir sundlaug, loftbor og lögreglukór gersamlega sniðgengin. Isspiss segi ég nú bara.
 
Jón Leifs
Isspiss. Þá er búið að eyðileggja fyrir manni frumflutninginn á nýjustu sinfóníunni minni, Hæni.

Ég heyrði ekki betur en hún hafi verið flutt í heild sinni, nótu fyrir nótu framan og aftan við Alþingishúsið í gær. Það voru kannski ögn færri skaftpottar og aðeins fleiri egg en ég skrifaði út. En samt – grunsamlega líkt.
 
Jón Leifs
Dæmigert. Ekki er unnt að frumflytja verk mitt, Ísalandskreppu, vegna ófyrirséðra vandkvæða. Svo virðist sem ekki sé hægt að byggja 1.000 manna svið á borgarísjaka og fleyta niður Þjórsá. Alltaf skal þetta vera svona. Alltaf skal fyrst skera niður í lista- og menningarlífi þegar harðnar á dal. Dæmigert.
 
Jón Leifs
Ég er að semja nýtt verk í tilefni af efnahagskreppunni miklu sem nú skekur íslenskt samfélag.

Það á að heita: Hólíkrapp! í e-moll
 
Jón Leifs
Samdi litla sæta vögguvísu í nótt - ljúfsárt og tregaþrungið verk.

Er að spá í að útsetja það fyrir tvær baujur, rafmagnstannbursta og hænsnakór.
 
Fréttir
Enter – 3/6/13
 
Númi Fannsker – 28/5/13
 
Lesbók
Enter
 
Úr þjóðbók

Ég vedifar immil takro æseiv obli tasto útibúti ;)

Fadomillinni elgos bundirri tobl ... tíhíhí.

Hinn annars ágæti fréttaþulur, Broddi Broddason (ef það er þá hans rétta nafn), sagði í hádegisfréttum Ríkisútvarpsins-hljóðvarps (eða RÚV, eins og stjórnleysingjarnir í Efstaleiti vilja af óskiljanlegum ástæðum kalla þessa stofnun sem við, skattborgarar þessa lands, eigum) að tiltekin rækjuvinnsla væri „farin á hausinn.” Heyr á endemi! Eru nú sjávarútvegsfyrirtæki úti á landi með hausa? Eða er tiltekin rækjuvinnsla ef til vill farin á haus einhvers annars? Bauhaus kannski? (aths. mylsnudreifara: þessa skrítlu sendi Mylsnufan - hafi hann þökk fyrir)

Vitaskuld hefði áðurnefndur Broddi átt að segja þarna að tiltekin rækjuvinnsla væri „farin á rassgatið,” enda eru þau bæði mörg og víðfeðm á sjávarútvegsfyrirtækjum þessa lands. Og jafnan troðfull af peningum annarra.

Einnig legg ég til að téður Broddi hækki róm sinn um eins og tvær áttundir. Þessi strigabassalestur verður til þess að mylsnudreifari þarf að skipta um rafhlöður í heyrnartækjum sínum daglega. Heyr á endemi!

Fyrirvari: Efni þessara skrifa endurspeglar á engan hátt staðreyndir. Það endurspeglar ekki einu sinni skoðanir mylsnudreifara. Í raun endurspeglar það ekki nokkurn skapaðan hlut.

Skotilbara. Það er komin út bók um mig.

Helvíti þykk meir að segja.

Læt Guddu tékka á henni.

Baggalútur er hýstur af alúð og umhyggju hjá ADVANIA