Þjóðbók
Jesús Kr. Jósepsson
sussi@divineentities.com
Jæja, dreif mig í dag og sagði mig úr þjóðkirkjunni. Komst að því að ég var skráður þar sjálfkrafa útaf mömmu.

Fólk varð auðvitað mishresst með þetta, skiljanlega. Best þótti mér samt konan fyrir aftan mig í röðinni – hún kallaði mig Júdas.
Egill Skallagrímsson
Yfir liggur uggur
ærinn landi vandi
Trump er himpið tregra
tálsýn hinna frjálsu.
Loksins lausir kosið
lúðasnúðar ríkja
minnis hafa mennska
mandarínu Banda.

[Uggur liggur yfir landi hinna frjálsu. Himpið Trump, tálsýn tregra, er ærinn vandi. Loksins hafa minnislausir lúðasnúðar Bandaríkja kosið mennska mandarínu.]
 
Sigurður Breiðfjörð
Kanntu brauð að baka?
Já það Kanye.
Svo úr því verði kaka?
Já það Kanye.
Ertu alveg viss um?
Já það er ég.
Eða ertu Kardashian að gabba mig?
 
Dr. Helgi Pjeturss
Almennt finnst mér að miðlar og aðrir þeir sem náð hafa tökum á gerkosmískum tengipunktum ættu að standa saman. Ég held til að mynda að með atfylgi allra þessara 365 miðla sem engum gera gagn í dag ættum við að ná góðu og stöðugu sambandi við aðrar lífstjörnur. Á móti gætu þeir endurheimt talsvert af dýrmætum áskrifendum sem hafa yfirgefið þetta tilverustig.
 
Jesús Kr. Jósepsson
Jæja, þetta er orðið gott.

Nú fer ég og skrái mig á Snapptjatt og Tinder og Twitter og allt þetta sjitt. Þið getið bara fylgt mér þar.

Þá er hægt að loka þessum kirkjum öllum og breyta þeim í hótel.
 
Jesús Kr. Jósepsson
Jæja. Loksins get ég sagt það.

Pabbi, þú ert íhaldssamur, fljótfær og sjálfhverfur karlrembufauskur.

P.S. Ég er fluttur til mömmu.
 
Davíð Stefánsson
Ellegar: „Blómstrandi BDSM dagar á Akureyri: Allt á að kveljast!

Ég finn það gegnum svefninn,
að einhver laumast inn
með útbúnaðinn sinn,
og veit, að það er konan,
sem kitlar „ofninn“ minn,
sem inn með tösku fer
að tánum fjöður ber
— og iljunum á mér.
Hugar svo að hnútunum
og herðir þar og hér.

Ég veit að hún á slæður
og sleipiefnagnótt
— ég slepp víst ekki í nótt.
Hendur hennar víðförlar
hár mín reisa skjótt.
Hún fer að engu óð
er öðru hverju góð
og vinnur verk sín hljóð.
Á meðan sem ég öskrandi
öll mín bundnu ljóð.

Ég veit að þessi lafði
með lostaböndin öll
er lygilega snjöll,
og launin, sem hún fær,
eru látlaus frygðarköll.
En útundan er sá,
sem aðra lætur smá
fullnægingu fá.
Fáir njóta eldanna,
sem fyrstir kveikja þá.
 
Sr. Hallgrímur Pétursson
Þú hefur mér fjölmarga fró sent
og fegurðinn streymir frá þér.
En þetta einasta prósent;
— ertu að fokka í mér?
 
Jónas Hallgrímsson
Tunguna má teygja að vild,
troðenni sem allra víðast.
Hún er fögur, hún er snilld
— hún er vöðvi, fyrst og síðast.
 
Jesús Kr. Jósepsson
Það var mikið. Þetta er nákvæmlega það sem ég er búinn að reyna að fá pabba til að innleiða í ég veit ekki hvað langan tíma. Fyrirgefning syndanna verður svo langtum, langtum skilvirkari þegar rafræm skilríki komast í notkun. Verstur andskotin samt að ég fékk enga leiðréttingu frekar en fyrri daginn.
 
Sr. Hallgrímur Pétursson
Tálgað hef ég innan úr mér
allt sem máli skiptir.
Einkum það sem anda lyftir.
Eftir standa eyðimerkur
yfirgefins huga.
En það verður víst að duga.
 
Jónas Hallgrímsson
Þar sem háir hælar
hálfan salinn fylla,
drósir börmum dilla
dúa leðurstólar
árla fyrir óttu
enn um miðja nóttu
mærin góða mer
mig í faðmi sér…
 
Jesús Kr. Jósepsson
Ókei. Sá næsti sem segir eitthvað hnyttið um krossfitt við mig í dag þarf að hafa ansi mikið fyrir himnaríkisvistinni.
 
     1, 2, 3 ... 45, 46, 47  
m.baggalutur.is Facebook Tvítill Tónlist.is iTunes YouTube Instagram RSS
Fréttir
Myglar – 24.04.23
 
Enter – 31.05.21
 
Enter – 22.10.20
 
Lesbók
Enter
 
Úr þjóðbók

Við elskum okkar smjör.
Það er gult og mjúkt.

Og meistarakokkarnir segja:

Að þetta sé.
Besta smjör heimsins!

En þetta er bara tímabundið ástand.
Við höfum áður flutt inn smjör.
En þetta stafar af því.

Að það er.
Neyslubylting í fitunni!

Og við verðum að fá þetta smjör frá vinum okkar Írunum.
Og setja í örfáar vörur.
Og svo kemur bara næsta ár.

Með allri sinni mjólk!

Mylsnufan sendi mylsnudreifara eftirfarandi símbréf:

„Á útvarpsstöð Latabæjar, eða „útvarpi Ambögubæ,“ eins og ég kýs að kalla það, heyrði ég nokkuð snoturt lag á dögunum. Lagið fjallaði um lítinn Mexíkóa með mexíkóahatt sem bjó einn í litlum bjálkakofa. Það var hinsvegar amböguskjóðunni Kötlu Maríu ofviða að fara með málfræðilega réttan texta í laginu. Hún söng: „Lítill Mexíkani með Sommsommbreró!“ Ítrekað. Klifaði bókstaflega á þessum ambögum; Mexíkani og Sommsommbreró! Ég spyr: Hvar og hvað er þetta Mexíkan? Er það ef til vill nálægt Mexíkó? Og hvaða orðskrípi er þetta Sommsommbreró? Er þetta ef til vill danska; Mexico og Sombrero? Uss! segir Mylsnufan.“

Já - það gerir mylsnudreifari líka.

Ási í Bæ orti um „ekta mexíkanahatt.“ Mylsnudreifari spyr: Er þarna kominn sommsommbreróinn sem Katla María syngur um? Og hvað er þetta „Bæ?“ „Ási í Bless,“ á þetta auðvitað að vera! Auk þess legg ég til að skipt verði alveg um stjórn í Efstaleiti. Og hvar er málfarsráðunauturinn? Er hann að sóla sig í „Mexíkan?“

Er túmöts að segja að Sleipnir hafi haft tólf augu, átján eyru og sex tögl – eða á ég að láta átta fætur duga?

Baggalútur er hýstur af alúð og umhyggju hjá ADVANIA