Mikiđ hefur veriđ suđađ í vísindamanninum ađ klára rannsóknina.

Íslenskur vísindamađur hefur náđ ađ einangra hiđ séríslenska tuđgen.

Er ţetta árangur ţrotlausra rannsókna á íslenskum bloggurum, álitsgjöfum, stjórnmálamönnum, hagsmunaađilum og sundlaugavörđum.

Markar uppgötvunin tímamót, en vonast er til ađ í framhaldinu verđi hćgt ađ ţróa bóluefni gegn tuđi – og jafnvel naggi, suđi og kvabbi, í fyllingu tímans.

Bókin sem minnst er á í fréttinni.

Svo virđist sem fćreyskur ţingmađur, Jenis av Rana, hafi í örvćntingu sinni beitt fyrir sig Biblíunni svokölluđu, til ađ losna viđ ađ hitta forsćtisráđherra íslands og eiginkonu hennar í kvöldverđarbođi.

Ekki mun vera um sérstaka fordóma ađ rćđa hjá manninum. Honum ţykja íslenskir ráđamenn einfaldlega upp til hópa drepleiđinlegir – og lái honum hver sem vill.

Vilhelm er nú ţegar mikiđ páskajólabarn.

Vilhelm Helmútson, brunnfrćđingur, hefur sett á laggirnar nýja fjölskylduhátíđ, sem hann kýs ađ kalla páskajól.

„Mér fannst vanta einhverja svona hátíđ í september – hressa ađeins upp á liđiđ. Ţannig ađ ég tók nú bara ţađ besta úr uppáhaldshátíđunum mínum, ţú veist, fullt af pökkum, seríur, svínakjöt og sjúklega mikiđ af súkkulađi – en sleppti öllu ţessu leiđinlega, krossfestingum, uppstoppuđum hćnuungum, gömlum köllum í náttfötum og barnsfćđingum.“

Vilhelm gerir ráđ fyrir ađ Páskajóladag beri upp á 3. fimmtudag í september – og annan í Páskajólum strax daginn eftir.

Hér sést hvernig Laddatalan ţróađist fyrstu tvo fjórđunga ársins 2010.

Laddarekstur ríkissjóđs jókst nokkuđ fyrstu tvo fjórđunga ţessa árs, ţvert á spár. Vonast hafđi veriđ til ađ fjárlagaladdinn yrđi lítill sem enginn en nú er ljóst ađ töluverđur laddi verđur á fjárlögunum.

Halli ríkissjóđs er hinsvegar mjög svipađur og undanfarin ár.

Herjólfur.

Í ljósi ţess ađ hin nýja og áđur glćsilega Landeyjahöfn er smám saman ađ fyllast af jarđvegi, sandi og drullu hefur veriđ ákveđiđ ađ breyta nafni hennar í Landeyjatorg.

Vonast er til ađ torgiđ muni eftir sem áđur nýtast ferđamönnum, en á ţví er gert ráđ fyrir lundapylsu- og gosöskusölu og auk ţess sem risavaxin stytta af Árna Johnsen ađ stinga sér til sunds mun rísa á ţví miđju – komandi kynslóđum til yndisauka og varnađar.

Óljóst er hvar ferjan seinheppna, Herjólfur, mun leggjast ađ landi í framtíđinni, en viđrćđur standa nú yfir viđ siglingamálayfirvöld í Fćreyjum um ađ beina ferđum hennar ţangađ.

Hawking mun ađ öllum líkindum ţurfa ađ eyđa eilífđinni međ einhverjum plebbum.

Svo virđist sem gleymst hafi ađ koma fyrir hjólastólarampi í álmu sem ćtluđ er sjúklega gáfuđum eđlisfrćđingum í Himnaríki.

Ekkert ađgengi er ţví fyrir eđlisfrćđinginn og ofurkrúttiđ Stephen Hawking inn á nćsta tilverustig.

Ađ sögn talsmanns Guđs Almáttugs, skapara, tengist ţetta ekki ummćlum Hawkings um ađ ekkert pláss sé fyrir Guđ í kenningum um sköpun heimsins.

Ingi verđur ánetjađur í nótt og mun taka á móti póki í tilefni dagsins.

Ingi Ingason útskrifađist í gćr frá Konunglegu sćnsku internetakademíunni í Visby međ gráđu í svonefndum pókmenntum, fyrstur Íslendinga.

Kveđst Ingi lengi hafa stúderađ pók á samskiptasíđunni Facebook, og algerlega heillast af flóknum samfélagslegum áhrifum ţessa sakleysislega fyrirbrigđis.

Fjallađi lokaritgerđ Inga um „Viđbrögđ sjúklega fallegs kvenfólks viđ ítrekuđu póki frá asnalegum nördum“.

Mćđginin hafa gert međ sér um 67 sambćrilega samninga síđastliđin 20 ár.

Mćgin í Efra-Breiđholti hafa gert međ sér svokallađan kyrrstöđusamning.

Í honum felst ađ sonurinn, Húbert, mun fá ákveđiđ svigrúm til ađ skipuleggja og hefja tiltekt í herbergi sínu – en ţađ hefur ekki veriđ ţrifiđ síđan fyrir fermingu hans á Hvítasunnudag áriđ 1989.

Lofar móđir hans ađ sýna stillingu og hvorki öskra á son sinn né hóta honum flengingu eđa öđrum limlestingum međan á samningstímanum stendur. Á móti lofar Húbert ađ byrja á sokkarhrúgunni og fiskabúrinu.

Vonast ţau bćđi til ađ međ samkomulaginu takist loks ađ ljúka endurskipulagningu heimilisins og ađ Húbert geti snúiđ sér ađ fullum krafti ađ ađ starfi sínu sem lögrfćđingur.

Bolur sambćrilegur ţeim sem Össur klćddist, nema minni.

Ögmundur Jónasson gerđi athugasemd viđ klćđaburđ samráđherra síns, Össurar Skarphéđinssonar, á ríkisstjórnarfundi í morgun.

Vildi Ögmundur meina ađ bolur sem Össur klćddist, merktur ensku bárujárnssveitinni Iron Maiden, vćri ósmekklegur og ögrandi.

Bćđi vćri um ađ rćđa engilsaxneskan áróđur frá Evrópusambandslandi auk ţess sem hávćr rokktónlist ýtti undir löngun í áfengi og kynti undir óćskilegum lifnađarháttum óharnađra sála.

Össur brást viđ međ ţví ađ fara úr bolnum međan á fundinum stóđ – viđ litla hrifningu annarra ráđherra.

Virti hagfrćđingurinn hefur unniđ ýmis trúnađarstörf fyrir sjálfstćđisflokkinn.

Virtur íslenskur hagfrćđingur hefur komist ađ sláandi niđurstöđum um ríkisstjórnina og ađra háttsetta íslenska embćttismenn.

„Ţeir eru allir örvhentir, eđa hafa veriđ ţađ á einhverjum tímapunkti, eđa sýnt af sér sterkar örvhendutilhneigingar,“ segir hagfrćđingurinn virti, en hann telur ţetta örugga vísbendingu um ađ örvhentir öfgasinnar séu ađ ná undirtökum í ţjóđfélaginu.

„Sanniđ ţiđ til, ţađ verđur komin vinstri umferđ hér aftur áđur en viđ vitum af, hnífapör fyrir rétthenda hćtta ađ fást í búđum og menn fara ađ heilsa međ vinstri. Ég kalla ţetta U2 áhrifin, enda versnađi sú hljómsveit til muna eftir ađ ţeir gerđust örvhentir 1993.“

Númi Fannsker
 
Númi Fannsker
 
Númi Fannsker

Ći. Vesalings litli Jenis. Ćtla nú stóru, vondu íslensku lesbíurnar ađ koma og taka hann? Taka litla strákinn og draga hann međ sér í stóra ljóta lesbíugreniđ sitt í Esjunni? Og sjóđa hann í stóra lesbíupottinum sínum? Og búa til úr honum risastóra fćreyska hálfbjánaloku međ sérlagađri lesbíusósu?

Stráktuskan.

Hér eru nokkur húsráđ gegn lesbíum sem hann gćti nýtt sér:

1. Hvítlaukur.
2. Aromat-krydd.
3. Vígt vatn (eđa óvígt - eftir smekk)
4. Biflían.
5. Natron.

8/9/10 Lesbók

Ekki vill međ Jóku Jenis
(Jesú vegna) snćđa.
Ekki vill hann einn međ penis
efnahagsmál rćđa.

Náđađ sjá í nćđi
nýja mynd í bíó.
Kreisí herta hausa
hamast alla saman.
Fleygar flugu línur
flćddi blóđ úr stóđi.
Ađ endi slöppum slepptum
Sly, ţiđ voruđ ćđi.

Hver hefđi trúađ ţví ađ djúpsteikt pylsubrauđ međ hnetusmjöri og hlynsýrópi fćru svona vel međ snikkerssmúđí? Alltaf lćrir mađur eitthvađ nýtt. Újebeibí!

Baggalútur er hýstur međ stolti hjá SKÝRR
Vigdís (72) lét sér nćgja ađ sitja á Arnarhóli og hrópa ókvćđisorđ ađ skemmtikröftum.

Vigdís (72) lét sér nćgja ađ sitja á Arnarhóli og hrópa ókvćđisorđ ađ skemmtikröftum.

Ţađ var glatt á hjalla á mysings-kvöldi mjólkursamsölunnar.

Ţađ var glatt á hjalla á mysings-kvöldi mjólkursamsölunnar.

Baldi (25) og Dóri (31) mćttu á

Baldi (25) og Dóri (31) mćttu á "swingerskvöld" Leđurbarsins á sunnudag

Vésteinn Ólason (91) lék á klarínettu <i>Tilbrigđi viđ Njálu í a-moll</i> ásamt blásurunum Terry Gunnell og Eika Rö á októberfest Árnastofnunar

Vésteinn Ólason (91) lék á klarínettu Tilbrigđi viđ Njálu í a-moll ásamt blásurunum Terry Gunnell og Eika Rö á októberfest Árnastofnunar

Hebbi (34) var í góđu geimi á Nasa. Hann fílađi nýja ţyngdarleysisfítusinn mjög vel.

Hebbi (34) var í góđu geimi á Nasa. Hann fílađi nýja ţyngdarleysisfítusinn mjög vel.

Guđmundur Gunnarsson (29) splćsti í trekant á Óđali.

Guđmundur Gunnarsson (29) splćsti í trekant á Óđali.

Baggalútur er eini skemmtistađur landsins sem leyfir reykingar, apahald og nektardans. Skrifstofan er opin alla miđvikudaga frá kl. 8.30–13.45.

Vinsamlegast hafiđ samband viđ ritstjorn@baggalutur.is ef ţiđ viljiđ kaupa hlutabréf, kvarta – ellegar tilkynna um lífsmark á öđrum lífstjörnum.