Þrír drumbar urðu í efstu sætum prófkjörs Sjálfstæðismanna í Reykjavík í gær og munu því að líkindum leiða flokkinn í komandi kosningum.
Konur og aðrir frambærilegir frambjóðendur röðuðu sér svo í næstu sæti og þurfa því ekki að hafa áhyggjur af að þurfa að dúsa í Ráðhúsinu í fýlu á næsta kjörtímabili.
Kjörsókn var framar vonum, enda þurfti ekki að hella upp á nema eina kaffikönnu í Valhöll.
Til sölu
Litlar, sætar og sérlega mjúkar Playboykanínur, kassavanar. A.v.á.
Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.
Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:
Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.
Góðar stundir.
Skrifstofumaður á fertugsaldri er ekkert spenntur fyrir leik Íslands og Króatíu sem fer fram seinna í dag. Einn Íslendinga. „Ég finn …
Fulltrúi fjármálaráðherra tekur sæti í Sinfóníuhljómsveit Íslands á næstu dögum. Mun hann hafa það hlutverk að fylgjast með afköstum og …
Maður á fertugsaldri er illa haldinn eftir neyslu á ólöglegu efni sem hann er talinn hafa dánlódað. Maðurinn er sagður …
Valinu á fegursta orði íslenskrar tungu er lokið. Það var orðið „krakkatogari“ sem varð fyrir valinu, en það þótti bera af …