Robbie Fowler, leikmaður breska knattspyrnafélagsins Leeds mun gangast undir brjóstastækkunaraðgerð á morgun. Mun aðgerðin liður í fegrun liðsins. "T.a.m var 3 leikmönnum liðsins gert að skera hár sitt og skegg, og fóru 4 í ljósatíma", er haft eftir Terry Venables nýráðnum knattspyrnustjóra liðsins. Venables hefur heitið því að taka liðið í gegn og að sögn hans er fyrsta skrefið að koma á aga í snyrtimennsku og framkomu. "Málið var öllu erfiðara með Robbie. Það var ljóst allt frá byrjun að það þyrfti lýtaaðgerð í hans tilviki", sagði Venables ennfremur. Reiknað er með að Fowler verði frá í allt að 3 vikur vegna aðgerðarinnar.
Til sölu
Lítið notuð æra. Fæst fyrir lítið fé.
Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.
Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:
Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.
Góðar stundir.