Baggalútur hefur samið við kínverska utanríkisráðuneytið um kaup á einum þekktasta grínista Kínverja. Sá heitir Wang Ronghua og hefur síðastliðin ár starfað sem sendiherra Alþýðulýðveldisins hér á landi og hefur þótt sýna góða takta í samskiptum sínum við landsmenn. Wang er að eigin sögn spenntur að komast að hjá stærra liði og spreyta sig í nýju umhverfi enda um töluverða viðurkenningu á hans störfum að ræða. Í samtali við fréttamann hafði herra Ronghua þetta að segja "....Tíbet ha, ha, ha, ha, ha!.....Hong Kong, mannréttindi....he,he,he,he,he,he...".
Til sölu
Vel með farinn fimmþúsundkall. Aðeins beyglaður efst í vinstra horni. Tilboð óskast.
Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.
Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:
Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.
Góðar stundir.