Forsætis- og utanríkisráðherra Ítalíu, Silvio Berlusconi varð fyrir árás útilegumanna við Geysi í gærmorgun. Voru þar á ferðinni rómaðir sauðaþjófar og stigamenn sem halda til í leynilegum dal -að talið er- í nágrenni Haukadals. Ráðherrann sakaði ekki, en lögregluþjónar frá Selfossi, vopnaðir sjálfvirkum hríðskotabyssum stökktu mönnunum á flótta eftir nokkur átök. Berlusconi hvatti í viðtali við Baggalút, til þess að Íslendingar legðu sitt af mörkum í baráttunni gegn hryðjuverkum með því að uppræta þá fjölmörgu flokka útilegumanna sem hafast við í óbyggðum Íslands.
Á einhver
brúsa af furunálafreyðibaði sem hann er hættur að nota? Veglegri greiðslu heitið. A.v.á.
Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.
Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:
Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.
Góðar stundir.