Frétt — Enter — 15. 4. 2002
Bjó neðansjávar í tvo mánuði
Freyr hlakkaði mikið til að fá sér hamborgara

Freyr Hermannsson, sjávarlíffræðingur, er nýkominn heim frá Norður-Noregi þar sem hann tók þátt í afar nýstárlegri tilraun.

Freyr bjó í tvo mánuði í litlu búri skammt undan strönd Noregs, sem væri ekki í frásögur færandi nema fyrir þá sök að búrið var á 160 feta dýpi. Að sögn Freys var þetta mikil þolraun, en jafnframt skemmtileg reynsla, "..til dæmis vingaðist ég við franska Hnísu og ég ræktaði líka rauðþörunga í skegginu á mér til að drepa tímann."

Freyr staldrar stutt við hér heima því hann mun fljótlega taka þátt í nýrri tilraun þar sem hann mun reyna að búa meðal Svía í tvær vikur - sem væri nýtt met.

Gagnnjósnari

óskast. Þarf að geta hafið störf strax. Góð tök á bæði færeysku og íslensku æskileg. Gott kaup.

Lesbók22. 10. 2020 — Enter

Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.

Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:


  • Ekkert starfsfólk
  • Engin viðvera
  • Ekkert húsnæði
  • Engin þjónusta
  • Engin gildi
  • Engin frí
  • Engin áhætta
  • Ekkert internetsamband
  • Enginn samningsvilji
  • Engin kaffivél

Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.

Góðar stundir.

 
§ Spiladós




§ Nýjustu fréttir: