Frétt — Enter — 11. 4. 2012
Einstæðingur með súkkulaðieitrun reyndi að éta fitnesskeppendur
Súkkulaðisýkin var á mjög háu stigi, eins og sjá má.

Piparsveinn á fimmtugsaldri hefur verið lagður inn á spítala með alvarlega súkkulaðieitrun.

Svo virðist sem hann hafi innbyrt ótæpilegt magn af súkkulaði um páskana, en móðir hans hafði gefið honum fjögur risapáskaegg „til að narta í“ yfir hátíðarnar. Var hann allur orðinn brúnn og glansandi og þuldi í sífellu óskiljanlega málshætti fyrir munni sér.

Maðurinn var loks handsamaður þar sem hann ruddist inn á stórt fitnessmót og reyndi að éta keppendur, í þeirri trú að þeir væru risapáskaegg.

Læknadóp

Magnyl! Strepsils! Paracetamol! Benylin! B-Vítamín! Vics! Bonjela! Viox! Acenton! Íbúfen!
Boggi dálkur - Hlemmi

Lesbók22. 10. 2020 — Enter

Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.

Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:


  • Ekkert starfsfólk
  • Engin viðvera
  • Ekkert húsnæði
  • Engin þjónusta
  • Engin gildi
  • Engin frí
  • Engin áhætta
  • Ekkert internetsamband
  • Enginn samningsvilji
  • Engin kaffivél

Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.

Góðar stundir.

 
§ Spiladós




§ Nýjustu fréttir: