Framandi gulleitur munkur í appelsínurauðum kufli hefur komið sér fyrir í Öskjuhlíðinni í Reykjavík þar sem hann hyggst íhuga afsagnir næstu daga, jafnvel mánuði.
Er öllum frjálst að koma og íhuga með munkinum, einkum spilltum stjórnmála- og embættismönnum, sem ýmist ekki kunna að skammast sín eða hafa ekki haft tækifæri til að íhuga stöðu sína í ró og næði.
Nærgætin
stúlka óskast á gott heimili í Vesturbænum. Þarf að hafa reynslu af umönnun og umhirðu urðarkatta.
Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.
Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:
Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.
Góðar stundir.