Frétt — Númi Fannsker — 24. 9. 2009
Keppir á auðveldasta móti heims
Leó var færður upp um 42 þyngdarflokka þar sem aðeins einn annar keppandi hafði skráð sig á mótið.

Leó Berndsen, Reykjavíkurmeistari í tölvumyllu, keppir um helgina á auðveldasta móti heims.

Mótið fer fram á hótel Guapo del Mare í spænska smábænum Torremolinos og þykir sem fyrr segir það auðveldasta sinnar tegundar.

Þátttakendur eru tveir; fyrrnefndur Leó Berndsen og norski hálfbjáninn Trond Eskefjell. Trond þessi er eini maðurinn sem vitað er til að hafi mælst með eins stafs greindarvísitölu - töluna sjö.

Mikill þyngdarmunur er á þeim Leó og Trond. Leó er 51 kg og Trond er 234 kg. Það ætti þó ekki að koma að sök.

Smjattpattar

Eru smjattpattar í garðinum þínum? Bjóðum upp á mikið úrval af gildrum og eitri til að gera útaf við litlu kvikindin. A.v.á.

Lesbók22. 10. 2020 — Enter

Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.

Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:


  • Ekkert starfsfólk
  • Engin viðvera
  • Ekkert húsnæði
  • Engin þjónusta
  • Engin gildi
  • Engin frí
  • Engin áhætta
  • Ekkert internetsamband
  • Enginn samningsvilji
  • Engin kaffivél

Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.

Góðar stundir.

 
§ Spiladós




§ Nýjustu fréttir: