Frétt — Númi Fannsker — 11. 2. 2002
Borgarbókasafnið tekur upp hertar innheimtuaðgerðir
Einar Kvaran, landfræðingur, var fyrstur til að vera "steiktur", hann neitaði skuld

Arnar B. Arnalz, bókasafnsfræðingur og forstöðumaður innheimtudeildar Borgarbókasafnsins kynnti á blaðamannafundi í morgun nýstárlegar innheimtuaðferðir bókasafnsins. Í máli hans kom fram að stjórn safnsins hefði keypt rafmagnsstól af gerðinni Old-Sparky 3000e, og komið fyrir á áberandi stað í safninu. Þeir sem ekki skila bókum innan við viku frá tilsettum skilatíma, verða teknir af lífi í stólnum og látnir greiða fyrir rafmagnið sjálfir. Búist er við að þetta fyrirkomulag bæti bókaskil verulega.

Viltu lífga upp á samkvæmið?

hef mikið framboð skemmtikrafta í barnaafmæli, fermingarveislur, steggja- og gæsaboð o.s.frv. Mjög sanngjarnt verð. Umboðsmaður Alþingis.

Lesbók22. 10. 2020 — Enter

Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.

Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:


  • Ekkert starfsfólk
  • Engin viðvera
  • Ekkert húsnæði
  • Engin þjónusta
  • Engin gildi
  • Engin frí
  • Engin áhætta
  • Ekkert internetsamband
  • Enginn samningsvilji
  • Engin kaffivél

Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.

Góðar stundir.

 
§ Spiladós




§ Nýjustu fréttir: