Frétt — Spesi — 27. 1. 2009
Lagt hald á um 30 hnakka
Sumir hnakkanna voru nær óþekkjanlegir er þeir fundust

Lögreglan hefur lagt hald á um 30 hnakka í tengslum við fjölda innbrota í hesthús á höfuð­borgar­svæðinu fyrr í mánuðinum. Voru hnakkarnir ansi þrekaðir og fölir yfirlitum, en talið er að sumir þeirra hafi ekki komist í ljósa­með­ferð svo dögum skipti.

Tvær konur voru í gær hand­teknar vegna málsins, en þær kváðust við yfir­heyrslur vera svo­nefndar hnakka­mellur og óskuðu þær báðar eftir sálfræði­aðstoð skömmu eftir handtöku.

Ekki er ljóst hvað hnakkarnir voru að gera í hest­húsunum, en líklegt er talið að þeir hafi fylgt eðlis­ávísun sinni þangað eftir að hafa ráfað frá tilsjónar­mönnum sínum.

Uppistöðulón

ónotað, fæst gefins. Lekur. Afgreiðsla vísar á.

Lesbók22. 10. 2020 — Enter

Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.

Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:


  • Ekkert starfsfólk
  • Engin viðvera
  • Ekkert húsnæði
  • Engin þjónusta
  • Engin gildi
  • Engin frí
  • Engin áhætta
  • Ekkert internetsamband
  • Enginn samningsvilji
  • Engin kaffivél

Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.

Góðar stundir.

 
§ Spiladós




§ Nýjustu fréttir: