Fjöldi fólks safnaðist saman á Austurvelli í hádeginu í dag til að mótmæla einhverju. Ekki er vitað með vissu hverju verið var að mótmæla, en líklegt er talið að flestir viðstaddra hafi verið að mótmæla háreysti nokkurra tónlistarmanna sem voru að öllum líkindum að mótmæla hækkandi verði á geisladiskum og trufluðu um leið störf þingmanna sem á sama tíma mótmæltu því að hafa ekki fengið vínarbrauð með kaffinu sínu í dag.
Ekki er talið að neinn hafi mótmælt lækkandi eldsneytisverði, væntanlegum björgunaraðgerðum í efnahagslífinu eða Megasi í þetta skiptið.
Á að mótmæla?
Heykvíslar, tjara, fiður og lambhússettur í miklu úrvali. Einnig auðmannavúdúdúkkurnar vinsælu.
Mótmælaþjónusta Magga.
Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.
Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:
Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.
Góðar stundir.