Frétt — Númi Fannsker — 1. 2. 2002
Uppgötvun Íslenskrar erfðagreiningar markar tímamót
Elvar Vagnsson, barnalæknir býr sig undir að taka sýni með aðstoð hinnar nýju tækni

Vísindamenn Íslenskrar erfðagreiningar hafa þróað aðferð við sýnatökur sem markar tímamót í líftækniiðnaðinum. Með aðferðinni er hægt að taka lífsýni úr fólki í gegnum síma og auðveldar það mjög alla gagnasöfnun. Í fréttatilkynningu frá ÍE kemur fram að sýnasöfnun sé þegar hafin og meinatæknar fyrirtækisins fari eftir símaskránni. Búist er við að slík sýnataka verði möguleg í gegnum gsm-síma innan skamms.

Helgarpabbi

óskast til að gæta 7 ára drengs aðra hverja helgi. Þarf að vera ca. 180 cm á hæð og með mikið svart skegg. Góð þekking á húsdýragarðinum og helstu ísbúðum æskileg. A.v.á.

Lesbók22. 10. 2020 — Enter

Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.

Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:


  • Ekkert starfsfólk
  • Engin viðvera
  • Ekkert húsnæði
  • Engin þjónusta
  • Engin gildi
  • Engin frí
  • Engin áhætta
  • Ekkert internetsamband
  • Enginn samningsvilji
  • Engin kaffivél

Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.

Góðar stundir.

 
§ Spiladós




§ Nýjustu fréttir: