Frétt — Enter — 12. 3. 2008
Laug til um kynlífshneyksli
Maðurinn verður að bíða enn um sinn eftir því að lenda í hneyksli.

Framkvæmdastjóri ónefnds útflutningsfyrirtækis viðurkenndi í dag að hafa logið því að stjórn fyrirtækisins og helstu viðskiptavinum að hann væri flæktur í svæsið kynlífshneyksli.

Svo virðist sem maðurinn hafi lengi reynt að öðlast viðurkenningu og aðdáun innan fyrirtækisins með því að slá um sig með ýmsum stórkarlalegum sögum, við litlar undirtektir – því hafi hann að endingu brugðið á þetta ráð.

Reyndist hneykslið rakinn uppspuni frá rótum og hefur framkvæmdastjórinn beðið hlutaðeigandi afsökunar, ekki síst knattspyrnuliðið Tuðra frá Færeyjum og geitina Sveinfríði sem spiluðu stóra rullu í frásögn hans.

Til sölu

Úlfskinns-loðkápa (pels), notuð en í góðu standi. Verð 500 krónur. Ómissandi fyrir þann sem ferðast mikið á vetrum.

Lesbók22. 10. 2020 — Enter

Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.

Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:


  • Ekkert starfsfólk
  • Engin viðvera
  • Ekkert húsnæði
  • Engin þjónusta
  • Engin gildi
  • Engin frí
  • Engin áhætta
  • Ekkert internetsamband
  • Enginn samningsvilji
  • Engin kaffivél

Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.

Góðar stundir.

 
§ Spiladós




§ Nýjustu fréttir: