Frétt — Númi Fannsker — 8. 2. 2008
Alvarleg sveppasýking í Vesturbæjarlaug
Laugin var rýmd skömmu eftir að baðgestir tóku að sýkjast snemma í morgun.

Heiftarleg sveppasýking hefur gert vart við sig í Vesturbæjarlaug og er fólki eindregið ráðið frá því að baða sig í lauginni þangað til hreinsunardeild borgarinnar hefur ráðið niðurlögum sýkingarinnar.

Upptök sýkingarinnar eru ókunn, en svo virðist sem afar skæður tásveppur hafi náð að hreiðra um sig í gufubaði laugarinnar og hann síðan borist í laugargesti. Hver gesturinn á fætur öðrum hefur sýkst í dag, en helstu einkenni eru hvítdoppóttur rauður „hattur“ og skæð bráðakynvilla.

Hreinsunardeild Reykjavíkur hefur fyllt laugina af mjög kröftugu sveppakremi og vinnur nú hörðum höndum að því að smyrja gufubað og klefa í hólf og gólf.

Tenórarnir komnir

gott úrval - ýmsar stærðir.
Hljóðfæraverzlun Sigvalda

Lesbók22. 10. 2020 — Enter

Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.

Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:


  • Ekkert starfsfólk
  • Engin viðvera
  • Ekkert húsnæði
  • Engin þjónusta
  • Engin gildi
  • Engin frí
  • Engin áhætta
  • Ekkert internetsamband
  • Enginn samningsvilji
  • Engin kaffivél

Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.

Góðar stundir.

 
§ Spiladós




§ Nýjustu fréttir: