Frétt — Númi Fannsker — 18. 9. 2006
Íslenskur rokksöngvari sigrar í sænsku þingkosningunum
Magni splæsti í hamborgara og kók í tilefni af sigrinum

Rokksöngvarinn Magni Ásgeirsson vann sögulegan stórsigur í sænsku þingkosningunum um helgina. Er því ljóst að að hann verður næsti forsætisráðherra Svíþjóðar. Ekki er vitað hvað varð til þess að Magni, sem ekki gaf kost á sér í kosningunum og rak í rogastans þegar blaðamaður Baggalúts spurði hann út í væntanlega ríkisstjórn, náði svo glæsilegu kjöri - en margt bendir til þess að utankjörfundaratkvæði frá Hawaii hafi ráðið úrslitum.

Til sölu!

Lítið notaður 4.000 lítra gufuketill

Lesbók22. 10. 2020 — Enter

Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.

Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:


  • Ekkert starfsfólk
  • Engin viðvera
  • Ekkert húsnæði
  • Engin þjónusta
  • Engin gildi
  • Engin frí
  • Engin áhætta
  • Ekkert internetsamband
  • Enginn samningsvilji
  • Engin kaffivél

Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.

Góðar stundir.

 
§ Spiladós




§ Nýjustu fréttir: