Frétt — Enter — 18. 2. 2006
Engin fuglaflensa í 17 hræjum
Starfsmenn hryðjuverka- og sóttvarnarmiðstöðvar Álftaness gættu fyllstu varúðar við meðhöndlun sýnanna.

Niðurstöður rannsókna á sýnum úr 17 flugeðlum (Pteranodon longiceps), sem fundust örendar á hlaði Bessastaða í gær benda til að enginn þeirra hafi drepist af völdum H5 afbrigðis fuglaflensu.

Lögregla hefur því afturkallað útgöngu- og samskiptabann á Álftanesinu og gefið út tilkynningu um að enginn ástæða sé til að óttast fuglaflensusmit - í bili.

Viðbúnaðarstig á svæðinu verður þó áfram appelsínugult þar til tekist hefur að handsama drekann sem réðst gegn eðlunum í gærkvöldi.

Reykvíkingar

ekki gleyma að gefa ógæfumönnunum. Þeir eru jafn ósjálfbjarga að sumri til, ólíkt smáfuglunum.

Lesbók22. 10. 2020 — Enter

Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.

Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:


  • Ekkert starfsfólk
  • Engin viðvera
  • Ekkert húsnæði
  • Engin þjónusta
  • Engin gildi
  • Engin frí
  • Engin áhætta
  • Ekkert internetsamband
  • Enginn samningsvilji
  • Engin kaffivél

Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.

Góðar stundir.

 
§ Spiladós




§ Nýjustu fréttir: