Starfsfólk Baggalúts er slegið eftir að ekki var ráðist inn í ritstjórnarskrifstofur útgáfunnar nú í dag. Gekk svo langt að ritstjórnarmeðlimir neyddust sjálfir til að hrinda niður hillum og taka hver annan hálstaki, svo stórsá á.
Í yfirlýsingu sem ritstjórn hefur sent frá sér um málið segir m.a. „...við getum aðeins vonað að sá óþjóðalýður sem réðst inn í ritstjórnarskrifstofur DV hafi farið húsavillt, enda engin rök fyrir því að taka DV fram yfir Baggalút í svona málum.“
SÍMI
Sá sem vildi leigja reglusömum manni herbergi, getur fengið fullkomin afnot af síma, og mjög háa leigu. A.v.á.
Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.
Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:
Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.
Góðar stundir.