Frétt — Enter — 28. 4. 2004
Vínylhákarl veiðist við Ísland
Hákarlinn var hress þegar ljósmyndara bar að garði, enda kann hann best við sig á þurru landi.

Skipverjar á línuveiðibátnum Hemúl GK veiddu í gær allstóran bláan vínylhákarl.

"..það er rétt, fiskifræðingur frá Hafró er búinn að rannsaka kvikindið," sagði einn bátsverja í samtali við Baggalút. "..við héldum fyrst að þetta væri bara venjulegur nælonhákarl - út af litnum sko - en það reyndist tóm vitleysa."

Mjög sjaldgæft er að vínylhákarl veiðist hér við land enda er hann nú í útrýmingarhættu vegna gegndarlausrar ofveiði á 20. öld - en skrápur hans var sem kunnugt er notaður í hljómplötur um árabil.

Til sölu

Vinsælt enskt knattspyrnulið í góðum rekstri. Einnig á sama stað tónlistarhús, óklárað.
Afgreiðsla vísar á

Lesbók22. 10. 2020 — Enter

Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.

Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:


  • Ekkert starfsfólk
  • Engin viðvera
  • Ekkert húsnæði
  • Engin þjónusta
  • Engin gildi
  • Engin frí
  • Engin áhætta
  • Ekkert internetsamband
  • Enginn samningsvilji
  • Engin kaffivél

Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.

Góðar stundir.

 
§ Spiladós




§ Nýjustu fréttir: