Frétt — Enter — 9. 10. 2003
Svikahrappur afhjúpaður
Bogi sem Jennifer Aniston.

Bogi Gústavsson, snyrtifræðingur, lætur jafnan lítið yfir sér - en ef ásakanir alþjóðalögreglunnar Interpol reynast réttar er hann einn bíræfnasti svikahrappur sögunnar.

Bogi var handtekinn í gær og gefið að sök að hafa ítrekað villt á sér heimildir, bæði hér heima en þó sérstaklega á erlendri grund. Aðferð hans var djöfullega einföld - hann dulbjó sig sem þekkt andlit úr skemmtanabransanum og stofnaði til ástarsambands við sterkefnaða, heimsþekkta aðila af hinu kyninu.

Meðal þeirra hlutverka sem Bogi hefur brugðið sér í á allra síðustu árum má nefna Gwyneth Paltrow, Jennifer Lopez og Mel B. Skiljanlega náðist ekki í þá félaga Chris Martin og Ben Affleck vegna málsins, en Fjölnir Þorgeirsson, stjarna, vildi koma því á framfæri að tíminn með Boga hafi verið yndislegur og sig hefði aldrei grunað neitt.

Einkamál

Eldri, atvinnulaus, einstæð, drykkfelld kona í Grindavík óskar eftir að kynnast sjúklega myndarlegum karlmanni á fertugsaldri sem veit ekki aura sinna tal - með náinn vinskap (kynlíf o.fl.) í huga.
A.v.á.

Lesbók22. 10. 2020 — Enter

Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.

Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:


  • Ekkert starfsfólk
  • Engin viðvera
  • Ekkert húsnæði
  • Engin þjónusta
  • Engin gildi
  • Engin frí
  • Engin áhætta
  • Ekkert internetsamband
  • Enginn samningsvilji
  • Engin kaffivél

Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.

Góðar stundir.

 
§ Spiladós




§ Nýjustu fréttir: