Félagarnir Hafnar og Marbjörn byrjuðu á dögunum á námskeiði í Kramhúsinu til að læra að faðmast.
"Við höfum verið rosalega góðir vinir lengi," sagði Hafnar í spjalli við Baggalút og Marbjörn bætti við: "Þess vegna hefur okkur fundist svo leiðinlegt að geta ekki tjáð vináttu okkar nógu innilega á líkamlegan hátt."
Þeir félagarnir fóru hægt af stað og gekk fyrsti tíminn aðallega út á smá snertingar, en þeir vonast til þess að geta fljótlega hreinlega legið í faðmlögum alla daga framvegis og tjáð þannig væntumþykju sína hvor á öðrum.
Saurfíklar athugið!
Kynngimögnuðu krypplingafóstrin komin aftur – einnig fyrirliggjandi mikið af notuðum panel (ATH. ekki kanil).
Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.
Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:
Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.
Góðar stundir.