Daníel Natansson, fyrrverandi umsjónarmaður, hefur komið sér upp búnaði til að frysta vessa sína í því skyni að verða "ódauðlegur og aðgengilegur um alla eilífð". Búnaðurinn er settur saman úr gegnheilum kóbalteiningum, nema spanskinnurnar, sem eru úr kóbaltfrauði - en í þeim eru sýnin varðveitt.
"Það má segja að ég reki hér dulítinn vessabanka - einskonar heimabanka, en bara fyrir vessa. Ég legg áherslu á að safna sem mestu af vessum", sagði Daníel í samtali við blaðamann og hélt áfram: "Reyndar safna ég mest sæði - það er skemmtilegast".
Þarftu að láta þjóðnýta fyrirtækið?
Hafðu samband við þjónustufulltrúa okkar og við ráðleggjum þér.
Seðlabankinn – sameiningarafl í almannaeign
Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.
Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:
Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.
Góðar stundir.