Spjót Einars Vilhjálmssonar, sem hann kastaði af Valbjarnarvelli í apríl árið 1988 fannst í hlíðum Úlfarsfells í morgun. Spjótinu kastaði Einar í nokkrum meðvindi, of miklum til að kastið væri að fullu löglegt. Mikil leit stóð yfir að spjótinu fyrstu dagana eftir kastið þar sem slíkur búnaður er nokkuð dýr.
Svifdrekamenn fundu svo spjótið í morgun og skiluðu því til Einars, sem hafði merkt það vel og vandlega.
Kennitöluflakkarar
Mikið af skemmtilegum og töff nöfnum að losna. Kynnið ykkur úrvalið. Fyrirtækjaskrá.
Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.
Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:
Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.
Góðar stundir.