Frétt — Spesi — 7. 10. 2002
Össur verri en kalt kaffi
Össur tók kaffið í nefið

Komið hefur í ljós að Össur Skarphéðinsson er verri en kalt kaffi. Er þetta niðurstaða könnunar sem fram fór síðastliðna viku hér á Baggalúti, en um 59% aðspurðra töldu kalt kaffi skárri kost en Össur.

"Neinei, þetta er mjög jákvætt fyrir mig," sagði Össur aðspurður um hvort þessi niðurstaða sé ekki mikið áfall fyrir hann. "Ég er rosalega ánægður með þetta og tel þetta styrkja mikið stöðu mína sem þungaviktarpólitíkus."

Kaffiheildsalar hafa brugðist hinir verstu við og eru nú að íhuga hvort grundvöllur sé fyrir málsókn. "Þetta er bara tilraun til að falsa staðreyndir," sagði einn viðmælenda Baggalúts. "Það er ekkert verra en kalt kaffi."

Ég býð upp á tannlækningu, ókeypis! Vantar fólk að æfa mig á vegna tveggja vikna námskeiðs. Einar Zöega, B.A.

Lesbók22. 10. 2020 — Enter

Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.

Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:


  • Ekkert starfsfólk
  • Engin viðvera
  • Ekkert húsnæði
  • Engin þjónusta
  • Engin gildi
  • Engin frí
  • Engin áhætta
  • Ekkert internetsamband
  • Enginn samningsvilji
  • Engin kaffivél

Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.

Góðar stundir.

 
§ Spiladós




§ Nýjustu fréttir: