Samkeppnisstofnun er þessa stundina að framkvæma húsleit í húsakynnum Kvennaathvarfsins. Að sögn samkeppnisyfirvalda er uppi rökstuddur grunur um að athvarfið nýti sér ráðandi stöðu sína á markaði til að bregða fæti fyrir hugsanlega keppinauta, og því ekki um annað að ræða en grípa í taumana. Starfsmenn Samkeppnisstofnunar komu snemma í morgun og byrjuðu að fjarlægja allt sem hugsanlega mætti nota sem sönnunargögn ef til lögsóknar kemur, s.s. föt, leikföng, húsbúnað, o.fl.
Tímavél
„nýleg“ - fæst gefins eða gegn sanngjörnu verði.
Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.
Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:
Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.
Góðar stundir.