HEIMASÍÐUR, HEIMASÍDUR, HEIMASÍDUR !!!
Vegna mistaka við innkaup höfum við umfram lager af flippuðum og hressum heimsíðum. Þarftu að koma fyrirtæki á framfæri? Ertu í ástarsorg? Eða bara atvinnulaus? Hvernig væri að skella sér á nýja heimsíðu hjá okkur???
Heimasíðurgerð Flippa
Til sölu
Litlar, sætar og sérlega mjúkar Playboykanínur, kassavanar. A.v.á.
Auglýsendur!
Að gefnu tilefni skal minnt á að ekki er tekið við auglýsingum á vefinn nema frá fyrirtækjum sem sannanlega eru í eigu Baggalúts-samsteypunnar eða tengdra aðila.
Stjörnukokkar
Vinsæla kattahakkið komið aftur. Fyrstir koma fyrstir fá!
Greiðendur fasteignagjalda!
Munið að þótt þið eigið í raun minna en ekkert í húsunum ykkar og bankinn gæti hirt þau af ykkur hvenær sem er, þá verðið þið samt sem áður að borga fasteignagjöldin. Svona erum við ógeðslega sniðug!
Sveitarfélögin

Hjónin Áskell og Guðfinna létu ekki kreppuna stöðva sig á 30 ára brúðkaupsafmælinu sínu heldur gerðu vel við sig í mat og drykk auk þess sem þau fóru í ævintýraferð sem þau hefur lengi dreymt um.
„Við splæstum í einn tank af bensíni og rúntuðum alla leið upp í Breiðholt. Skoðuðum Æsufellið og kíktum Mjóddina, þar sem frúin verslaði sér ægilega fína eggjasuðuklukku á 80% afslætti. Fengum okkur svo saman pulsu með sinnepi og steiktum og skoluðum henni niður með ísköldum pilsner,“ segir Áskell stoltur.
Í kvöld ætla þau hjónakornin svo að hafa það notalegt heima og og stelast til að horfa á sjónvarpið gegnum gluggann hjá nágrönnunum. „Svo kveikjum við jafnvel á kyndingunni í nótt – ef við verðum ekki í þeim mun meira stuði!“ skríkir Guðfinna að skilnaði.

Már Másson, lífeyrisþegi, hefur tekið tilsjónarmann sinn, Una Ingjaldsson í sátt.
Már hefur átt afar erfitt með að láta sér lynda við „bölvuð skeinidýrin“ eins og hann kallar þá 38 tilsjónarmenn sem hann hefur reynt sig við hingað til. Hefur hann látið öllum illum látum við baðferðir og ítrekað setið fyrir þeim með vatnsblöðrur og ýmis konar matarleifar að vopni. Þá hefur hann kallað þá mjög ljótum og andstyggilegum nöfnum, sem óþarfi er að tíunda hér.
En Már segist nú loksins sáttur, enda hafi þeir báðir smekk fyrir grófum ofbeldismyndum, túnfisksalati og Barbru Streisand. Honum sé því vel við Una.

Krakkarnir í Icesave-nefndinni slepptu algerlega fram af sér beislinu um síðustu helgi, þar sem þeir voru við „fundahöld“ í Lundúnum. Er nú svo komið, skv. heimildum Baggalúts, að Bretar og Hollendingar eru við það að gefast upp á eilífu partýstandi, ungæðislegu flippi, barnaskap og skrílshætti íslensku samninganefndarinnar.
„Strákar verða alltaf strákar,“ sagði Lee Buchheit, talsmaður nefndarinnar í samtali við Baggalút.

Íslenskir peningahyggjumenn vinna nú hörðum höndum að því að reisa nýtt musteri helguðu guðinum sívinsæla Mammoni í Borgartúni.
Segja þeir til skammar hvernig eldri musteri hafi skipulega verið vanhelguð og saurguð af kommúnistum og öðrum „auðhöturum“.
Ef allt gengur samkvæmt áætlun getur messuhald hafist á vormánuðum. Áætlað er að hefja starfsemina með trukki með veglegum gjaldkerafórnum, auk þess sem áætlað er að skipa Hreiðar Má Sigurðsson verndardýrling afleiðusamninga við opnunina.

Útgáfu á skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis hefur verið frestað. Tefst útgáfan að sögn „eitthvað pínu smávegis í viðbót“ og er hennar að vænta „um eða eftir páska eða eitthvað aðeins seinna“.
Samkvæmt heimildum hefur prentun skýrslunar gengið nokkuð vel en hún verður gefin út í 1.800, ákaflega smekklegum gylltum og smaragðslögðum bindum.
Hins vegar strandar útgáfan nú á prentun viðauka því ósýnilega indverska blekið sem þeir eru prentaðir með kláraðist um helgina.

Feðgarnir og víkingaveiðararnir Alfons og Gulli klófestu snemma í morgun þrjá af hinum svokölluðu útrásarvíkingum.
Víkingarnir höfðu brugðið sér í þorsklíki til að dyljast blóðþyrstum almenningi, en komu upp um sig þar sem til þeirra sást gæða sér á styrjuhrognum og öðrum dýrindis sjávarréttum skammt austur af landinu – um leið og þeir reyndu að greiða nokkrum skelfdum súlum fyrir að dansa fyrir sig.
Verið er að kyn- og aldursgreina víkingana, en að svo búnu verður höfðum þeirra komið fyrir á þartilgerðum stöngum fyrir framan Stjórnarráðshúsið.
Baggalútur er hýstur með stolti hjá SKÝRR

Árni Mathiesen, settur dómsmálaráðherra, hefur sent frá sér rökstuðning fyrir skipan Þorsteins Davíðssonar, aðstoðarmanns í dómaraembætti við Héraðsdóm Norðurlands eystra.
Rökstuðningurinn, var skrifaður með afar vandvirknislegri rithönd á fallegt bréfsefni. Er hann í sex liðum og svohljóðandi:
1. Steini litli hefur alla tíð verið afar hjálpsamur og duglegur drengur - og skal sérstaklega tekið til þess hve þolinmóður og nærgætinn hann hefur verið við dómsmálaráðherra.
2. Hann er mjög þrifalegur.
3. Hann er sérlega vel upp alinn.
4. Hann hefur unnið ýmis trúnaðarstörf fyrir Sjálfstæðisflokkinn.
5. Hann hefur víðtæka reynslu af dómarastörfum, m.a. á samsýningum Kattavinafélagsins auk þess að hafa skrifað vandaðan bókadóm í barnablaðið ABC á sínum tíma.
6. Hann talar íslensku.