— LESBÓK —
7/3/10 • Enter • Forystugrein
 
5/3/10 • Enter • Dagbók
 
4/3/10 • Spesi • Gagnrýni
 
27/2/10 • Enter • Dagbók
 
19/2/10 • Enter • Dagbók
 
— SPILADÓS —
— GALLERÍ RUNK —

Gjörningaveisla á þorra! Missið ekki af gjörningi listamannsins Spóa, þar sem hann

ríður frjálshyggju-glyðrunni á slig!

Alla miðvikudaga á þorranum.

— SMÁAUGLÝSINGAR —

Til sölu

Litlar, sætar og sérlega mjúkar Playboykanínur, kassavanar. A.v.á.

Auglýsendur!

Að gefnu tilefni skal minnt á að ekki er tekið við auglýsingum á vefinn nema frá fyrirtækjum sem sannanlega eru í eigu Baggalúts-samsteypunnar eða tengdra aðila.

Stjörnukokkar

Vinsæla kattahakkið komið aftur. Fyrstir koma fyrstir fá!

Greiðendur fasteignagjalda!

Munið að þótt þið eigið í raun minna en ekkert í húsunum ykkar og bankinn gæti hirt þau af ykkur hvenær sem er, þá verðið þið samt sem áður að borga fasteignagjöldin. Svona erum við ógeðslega sniðug!
Sveitarfélögin

Auðtrúa asnar athugið!

Myntkörfulánin sívinsælu eru komin aftur!
Bankarnir

— FRÉTTIR —
Ekki þykir við hæfi að birta mynd af mottu Sigþrúðar hér, en áhugasamir geta haft samband við hana beint.

Mottumarsinn, átak krabbameinsfélagsins, hefur varla farið fram hjá nokkrum manni. Ótrúlegustu karlmenn skarta nú dálaglegum mottum af öllum stærðum og gerðum – og væri óskandi að efri varir íslensks karlpening væru að staðaldri jafn gróskumiklar og loðnar.

Hjónin Skæringur og Sigþrúður láta ekki sitt eftir liggja og hafa bæði safnað myndarlegri mottu til stuðnings átakinu. Að sögn skærings hefur söfnunin gengið prýðilega, þó hann viðurkenni að frúin hafi dálítið forskot – enda búin að safna samfleytt frá árinu 1983.

[Sækið lagið Yfirvararskegg]

Enter11/3/10
Sigursteinn er með magisterspróf í efnafræði og ped. jur. próf frá háskólanum í Þrándheimi.

Sigursteinn Sigsteinsson, menntaskólakennari, er ekki lengur á lista Forbes yfir ríkustu menn í heimi.

Sigursteinn náði hæst fjórtánda sæti á listanum, snemma árs 2007. Hann var þá umsvifamikill á alþjóðlegum gjaldeyrismarkaði og naut talsverðrar velgengni í gagnhverfum afleiðuskiptasamningum með hlutabréf. Einkum hlutabréf í hans eigin félögum.

„Já, þetta er rétt, ég er ekki lengur á þessum lista hjá honum Forbes,“ sagði Sigursteinn í samtali við Baggalút. „Enda er ég eiginlega alveg hættur í þessu andhverfa afleiðugagnadóti öllu. Þetta eru einhverjir sjötíu þúsund milljarðar sem ég tapaði, sirka, þannig að ég er nú bara farinn að kenna efnafræði aftur. Það er fínt,“ sagði Sigursteinn.

Samningurinn er upp á nokkrar blaðsíður. Dæetkókdósin tengist fréttinni óbeint.

Baggalútur hefur undirritað rammasamning samkvæmt rammaáætlun félagsins. Rammaáætunin grundvallast á þverviðfanglegri nálgun og skilgreiningu samkvæmt rammasamningi, sem skilgreindur er í rammaáætlun.

Rammaáætlunin bestar ýmsa greiningarferla og markmið sem nánar eru útfærð í rammasamningnum sem undirritaður var í dag. Í honum eru nákvæmlega skilgreindir verkþættir, sem taka mið af markmiðasetningu í rammaáætluninni.

Margir kannast við Garp, en hann striplast oft í Fossvoginum á góðviðrisdögum.

Ofurhetjan Garpur hefur létt leynd af hinu raunverulega sjálfi sínu, fyrst íslenskra ofurhetja.

Mun hann í raun vera Adam Einarsson, prins, búsettur í Fossvoginum ásamt aldraðri móður sinni og gæluketti.

Tíðindin koma fáum á óvart, enda er Garpur sennilega eina ofurhetjan sem ekki styðst við dulargervi af neinu tagi, heldur lætur sér nægja að afklæðast þegar hann fer í „ofurham“.

Enter10/3/10
Kulnunin sem Bergur hefur orðið fyrir er áþreifanleg.

Bergur Baldursson, skrifstofumaður, hefur orðið fyrir heiftarlegri kulnun í starfi undanfarið. Hann hefur ítrekað farið heim með hélað skegg, gaddfreðnar nasir og þrálátan hósta auk þess sem hann hefur vart undan að þerra móðu af lesgleraugum sínum.

Kennir hann samstarfsmanni sínum, Þuríði Þrándardóttur, um kulnunina, en hún aftekur með öllu að loka glugga í sameiginlegri vinnuaðstöðu þeirra í Borgartúni – í það minnsta þar til Bergur hefur baðað sig.

Enter9/3/10
Ertu ekki að fokkings djóka með þessar augabrúnir kona?

Ellý Ármannsdóttir er hætt slúður- og slefburðardeild Vísis.

Ekki er fyllilega ljóst hvers vegna, en að sögn samstarfsfólks hennar mun þessi drottning gjálífisumræðunnar á Íslandi hafa rokið út af ritstjórn Vísis eldsnemma í morgun og skellt á eftir sér öllum tiltækum hurðum.

Mun Ellý hafa setið alla nóttina og reynt að finna eitthvað athugavert við klæðaburð, vaxtarlag, hárgreiðslu, andlitsförðun eða ástand húðar skærustu stjarnanna á Óskarsverðlaunahátíðinni – án árangurs.

Enter8/3/10
» FLEIRI FRÉTTIR
Facebook Gogoyoko Tonlist.is RSS

Baggalútur er hýstur með stolti hjá SKÝRR

— SKRÍPÓ —
— SJÓNVERPILL —
— ÞJÓÐBLOGG —

Þrotinn er mér andans kraftur.
Öllum lokið. Ó, vei!
Gleður heiminn aldrei aftur
eitísstirnið Corey.

Í kjörklefanum vil ég vega
valkosti, og skegg mitt strjúka.
Að lokum sest ég sæmilega
sáttur oná þá og kúka.

Örstutt af gildi kosninga | Hjálmar Jónsson frá Bólu

Þó hér starfi þjóðþing elst
þá þykir mér það leitt;
ef ég kýs, þá kýs ég helst
að kjósa ekki neitt.

Ikea í Ameríku!
Aldrei venst því ríkra slekt.
Flíka skaltu fráleitt slíku
– forljótt, sænskt og tíkarlegt.

— AUGLJÓS —
— HIN FÖGRU & FRÆGU —
— HIÐ MIKLA SAMBAND —

Baggalútur er eini skemmtistaður landsins sem leyfir bæði reykingar og nektardans. Skrifstofan er opin alla miðvikudaga frá kl. 8.30-13.45.

Við minnum á áskriftargjöldin. Heilsárskortin eru nú á aðeins 120.000 kr.

Vinsamlegast hafið samband við ritstjorn@baggalutur.is ef þið viljið fá eiginhandaráritanir, kaupa hlutabréf, kvarta ellegar tilkynna um lífsmark á öðrum lífstjörnum.